Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 59
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 167
iiimiiiiiiuiimmiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiimmmimmiimmiiiiiiiiiimmmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimtiiimiiiiiiiii
velja og meðan gnægð er berja, virðist rjúpan heldur sneiða
hjá því.
Grasvíðir (Salix herbacea) hefir fundizt hjá 17 rjúpum
(74 %). Voru það aðallega brumknappar, en einnig smágreinar
með brumknöppum og einstök blöð þessarar tegundar, sem rjúp-
urnar höfðu nærzt á. Hjá mörgum af þessum rjúpum voru brum-
knappar grasvíðisins aðalinnihald sarpsins. Grasvíðirinn verður
því að teljast aðalfæða þeirra rjúpna, er rannsakaðar voru. Að
vísu fundust leifar krækilyngs hjá fleiri rjúpum, en eins og áður
hefir verið sýnt fram á, mun ekki vera réttmætt að 'taka tillit til
berjasteinanna í fóarninu, og verður talan því mun lægri. Auk
þess var krækilyngið hvergi jafn yfirgnæfandi hluti fæðunnar
og grasvíðirinn.
Aðalbláberjalyng (Vaccinium Myrtillus) og bláberjalyng
(Vaccinium uliginosum) ganga næst grasvíðinum og ki’ækilyng-
inu, en eru þó mun þýðingarminni liður í fæðunni. Hver þessara
tegunda hefir fundizt hjá 9 rjúpum (39%). Voru það bæði brum-
hnappar og ber þessara tegunda, sem rjúpurnar höfðu nærzt á.
Kornsúra (Polygonum viviparum). Æxlikorn eða blöð þess-
arar tegundar hafa fundizt hjá 7 rjúpum (30%). Má telja víst,
að kornsúran sé allþýðingarmikil fæðutegund, að minnsta kosti
á sumrin og fram eftir hausti.
Holtasóley (Dryas oetopetala). Nafnið á blöðum þessarar
tegundar (rjúpnalauf) bendir ótvírætt í þá átt, að hér sé um
þýðingarmikla fæðutegund að ræða. Eg hefi þó ekki fundið leifar
hennar (blöð) nema hjá 4 rjúpum (17%).
Fjalldrapi (Betula nana) og Þúf.usteinbrjótur (Saxifraga
groenlandica). Hvor þessara tegunda hefir fundizt hjá 2 rjúpum
(9%). f sarpi 2 rjúpna, sem skotnar voru 14. nóv., voru nokkur
þúfusteinbrjótsbrum og dálítið af fjalldrapabrumknöppum var í
2 sörpum frá 20. nóvember.
Grávíðir (Salix glauca), Blóðberg (Thymus serpyllum var.
prostratus) og Vetrarblóm (Saxifraga oppositifolia). Hver þessara
tegunda hefir fundizt hjá 1 rjúpu (4%). í sarpi frá 12. júní var
ekkert nema grávíðisblöð, í sarpi frá 14. nóvember voru allmarg-
ar blóðbergsgreinar, og í sarpi frá sama degi voru nokkur vetrar-
blómsbrum.
Eg hefi greint hér allítarlega frá samsetningu fæðunnar hjá
þeim 23 rjúpum, sem eg hefi haft tækifæri til að rannsaka. Æs'ki-
legt hefði verið að gögnin hefðu verið meiri. Eg er í engum vafa