Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 67

Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 67
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 175 iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiiiiimitiimiiiiiiiiiiiims gróið li/3 metri af breidd sársins, og hefði það fengið að vaxa í friði, hefði það að líkindum verið algróið sára sinna nálægt ár- inu 2250. Þessi dæmi sýna ljósast, að tímatal okkar verður harðla smávaxið 1 lífi risafurunnar. En það er hægt að nota árhringarannsóknir risafurunnar til annara merkilegra hluta en að ákveða hvenær skógareldar hafa geysað í Kaliforníu. Með þeim rannsóknum er unnt að segja um árferði á löngu liðnum öldum og ákveða hvenær ýmsir mikilvægir atburðir hafi gerzt, þótt þeir hafi orðið löngu áður en skráðar sögur hefjast. Árhringar í trjám skapast við það, að í trjábolnum er frumu- lag, sem vaxtarlag kallast. Á vorin og framan af sumri skipta frumur þess sér í ákafa, og nýtt lag leggst utan á viðinn á ári hverju; þegar kemur fram á sumarið, dregur úr þessu starfi þeirra, og með haustinu hættir það alveg, þar til frumurnar vakna af dvala næsta vor. Nú kemur það einnig í ljós, að vorfrumurnar eru miklu stærri heldur en sumarfrumurnar, og þannig kemur fram hin skarpa lagskipting, sem skapar árhringana. Hver, sem athugað hefir árhringa í tré, getur séð, að þeir eru misjafnlega þykkir, og menn hafa gert miklar rannsóknir til að sýna hvað valdi því. Þannig er þykkt árhringanna háð aldri trésins. Það hefir komið í ljós, að á fyrstu árum risafurunnar gildnar stofninn örast. Þannig vex 25 mm viðarlag á hverjum 10 árum fyrstu 100 árin. Þegar tréð er orðið 800 ára, er 10 ára vöxt- urinn aðeins 10 mm, og á 8000 ára tré ekki nema 6—7 mm. Til þessa verður að taka tillit, þegar samanburður er gerður á vexti trjáa. — Þá eru hin ytri skilyrði ekki síður mikilvæg fyrir vöxt ár- hringanna. Menn hafa borið saman þykkt árhringa og hitastig áranna, og fundið gott samræmi þar á milli. Sama er að segja 'um úrkomumagn. En vitanlegt er, að enginn einn þáttur vaxtarskil- yrðanna er það, sem ákveður hversu mikið tréð vex á ári hverju, heldur mun ársvöxturinn sýna heildarútkomu allra vaxtarmögu- leika, sem hvert ár hefir veitt. Sólin er lífgjafi alls, sem lifir og hrærist á vorri jörð. Það væri því eðlilegt að álykta, að sveiflur í geislamætti sólarinnar mundu valda misjöfnum vexti í árhringum trjánna. Vegna jarð- snúningsins hljóta slíkar breytingar að sjást hvarvetna á jörð- unni, en ekki einungis á risafurunni í Kaliforníu. Það var því engin furða, að amerískur prófessor, Douglas að nafni, tók sér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.