Náttúrufræðingurinn - 1937, Síða 12
120 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
lllllllllllllllllfllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Fáséður fiskur.
í einu af handritum sínum getur Jónas Hallgrímsson um
fisk, sem maður einn á Bíldudal hafði veitt úti fyrir Yestfjörð-
um (einhverntíma á árunum 1835—40) og gefið hann á dýra-
safn konungs í Kaupmannahöfn. Má gera ráð fyrir, að Jónas hafi
annaðhvort séð fiskinn í Höfn, eða fengið vitneskju um hann hjá
dýrafræðingunum Reinhardt eldra eða Japetus Steenstrup, og víst
er um það, að hann telur engan vafa á því, að þessi fiskur, sem
hann skírir „brynstirtlu", hafi fengizt hér við land, og vegna þess
hefir höfundur tekið hann upp í fiskabók sína (bls. 148—149).
Síðan þetta gerðist eru nú liðin 100 ár eða þar um bil og
aldrei hefir fisksins orðið vart, svo ástæða gat verið til að efast
um, að fiskur þessi hefði nokkurntíma sést hér. En •— viti menn:
12. sept. síðast liðinn hringir til mín Ingvar Gunnarsson, kennari
og vörður Hellisgerðis í Hafnarfirði, og segir mér frá smáfisk-
um, er drengir höfðu þá um daginn veitt við bæjarbryggjuna. Af
lýsingunni gat eg ekki almennilega áttað mig á því, hver fiskur-
inn væri, og sendi hann mér því um kveldið 2 af fiskunum og sá
eg þá brátt, að þeir voru sama tegund og fiskur sá, sem Jónas
skýrir frá og nefnir brynstirtlu (Caranx trachurus (L.)),
á Norðurlandamálum Hestemakrel, á ensku horse mackerel.
Norræna brynstirtla (Caranx trachurus). Eftir Wollebæk.
Brynstirtlan telst til ættar, sem við hana má kenna, bryn-
stirtluættarinnar (Carangidæ); það er fjölskrúðug ætt, í heitum
og tempruðum höfum og greinist í ca. 30 ættkvíslar, með fjölda
tegunda; ein þessara tegunda er sú, sem hér er um að ræða, eða
norræna brynstirtlan (C. trachurus); hún er uppsjávar-
fiskur, líkt og aðrir fiskar af ættinni, eða síld og makrílar, og á
heima við allar strendur Evrópu, frá Þrándheimsfirði í Noregi
og suður í Miðjarðarhaf. Fullvaxin er brynstirtlan á stærð við