Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 21

Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 21
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 129 iliiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiimiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiii var tómur uppspuni. Þar gat að lesa greinar um risavaxin tré, ótrúlegustu dýr, fleyga menn, stutt og laggott: Auðugt líf, öld- ungis frábrugðið jarðlífinu. Þótt blaði þessu verði ekki taldar þessar frásagnir til tekna, verður að geta þess, til þess að sýna áhuga manneskjunnar á spurningunni um líf á öðrum hnöttum, að blaðið varð á svipstundu feikna víðlesið, enda þótt það væri lítt þekkt áður en það hóf þennan skáldsagnafaraldur. Það sem við sjáum frá ferðavélinni okkar er heldur en ekki frábrugðið því, sem lýst var í ameríska blaðinu. Á yfirborði tunglsins eru auðsjáanlega víðlendar eyðimerkur; þær eru meira og minna flatar; þar er ekkert líf að sjá, hvað þá heldur mann- virki. Hingað og þangað í eyðimörkinni rísa há, hringmynduð fjöll frá jafnsléttu, engu líkari en gömlum, feiknastórum gýgum, en það eru þessi fjöll líka eftir öllum merkjum að dæma. Sum af þessum „hringfjöllum“ eru svo stór, að allur Vestfjarða-kjálkinn gæti staðið innan í þeim. Hér og þar sjáum við hvassa fjalla- tinda og langa fjallgarða, sem eru enn í dag eins köntóttir og ófágaðir eins og þegar þeir urðu til, endur fyrir löngu. I milljónir ára hafa fjöllin á jörðunni verið undirorpin áhrifum af regni, snjó og vindi, og þess vegna hafa þau veðrast, en um slíkt eru engar menjar á tunglinu, af því að þar vantar gufuhvolfið. Fyrir fræknustu fjallafara væri það hrein eldraun að klifa upp fjöllin á tunglinu, jafn há og brött og þau eru. Fjallgarður sá, sem við sjáum að liggur á ská „neðantil“ á tunglinu, er um 720 km. á lengd, með yfir 3000 tindum. Sá hæsti er um 6000 metrar á hæð, og annar er rúmlega 5000 metrar. Fyrir norðan þennan fjallgarð liggur mikil slétta, sem áður var haldið að væri haf, niður að henni falla f jallshlíðarnar, snarbrattar og klettóttar, sem úthafs- strendur. •— Orsökin til þess, að um tunglið er ekkert gufuhvolf, er líklega sú, hve létt það er, og aðdráttarafl þess lítið. Það var rétt á tak- mörkunum, að ferðavélin okkar, sem fór af stað með 11 km. byrj- unarhraða á sek., gæti sigrazt á aðdráttarafli jarðarinnar. Ef hraðinn hefði verið ofurlítið minni, þá hefði vélin okkar •— með okkur í — fallið til jarðar aftur, alveg eins og byssukúla, sem skotið er upp í loftið. Gufuhvolf jarðarinnar er ekkert annað en óteljandi fjöldi af mólekýlum, sem stöðugt eru á sífelldri hreyf- ingu með miklum hraða, ef til vill mörg hundruð eða mörg þús- und metr. á sekúndu. En fæst þeirra ná þeim hraða, sem nauðsyn- 9

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.