Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 40

Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 40
148 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN lllllllllllllllll.. þótt trygg sé, að sá fræi og planta smáum trjám, er afar seinleg. Þó mun hún vera aðalúrræði íslenzkra skógræktarmanna. 0g hún getur líka gefist vel. En eitt er þó í þessu sambandi, sem þess er vert að athugað sé, og það er sú aðferð að flytja fullvaxin tré úr gömlum skógum inn í hin nýju skóglönd og gróðursetja þau þar, til skjóls hinum ungu plöntum og til uppfyllingar. Ber þá að taka tré þessi aðallega úr þeim skógum, sem afsíðis eru, eða talið er að muni liggja undir skemmdum, annaðhvort af völdum náttúr- unnar eða þá manna, bæði beinlínis með skeytingarleysi og óbein- línis með hirðingarleysi. Bjarkirnar í landi Tungu í Bleiksmýrardalsmynninu munu við væntanleg eigendaskipti geta hlotið ill örlög. Því verður að kappkosta að sjá svo um, að sá, er landið hlýtur, sé þess verður að hljóta. Fyrst og fremst verður að bægja þar bröskurum frá að ná eignarrétti. Sauðfjárupprekstrar Eyfirðinga í þingeysk eyðijarða- og afréttalönd mega aldrei líðast. Viðkomandi hreppur, Hálshreppur, mun heldur eigi verða sá góði eigandi, sem bjarkirnar í Bleiksmýrardal þarfnast. Eigi má þó mál mitt skilja á þá leið, að eg telji Fnjóskdælinga yfirleitt líklega til að eyðileggja sína eigin skóga, þó að vísu sé til einstaka maður þeirra á meðal, sem dýrkar eld sinn og haframjölsgrauta meir en fagran skóg. Það er hirðingarleysið, sem helzt er að óttast. — Skógræktarfélagið á Akureyri og í Eyjafirði ynni þarft verk í þágu skógverndunarinnar, ef það keypti jörðina Tungu í Fnjóska- dal. Og auðvitað verður að sjá svo um, með einhverjum góðum ráðum, að félagið hljóti jörðina fyrir mjög lítið verð, eða þá að minnsta kosti með alveg sérstaklega góðum greiðslukjörum. Skóg- inn í landinu verður svo félagið að vernda. (Og þá má eigi gleyma birkiskóginum í Tunguöxl. Sjá Náttúrufræðinginn 5. ár, bls. 64.) Og mun það til þess geta notið aðstoðar skógarvarðarins á Vögl- um. Mörg tré í Tunguskógi munu vera hentug til að flytja lifandi til gróðursetningar í skógarnýrælctinni austan við Akureyrarpoll, og væri þá gott að þurfa eigi að taka til þess tré úr hinum stærri skógum. Fræsöfnun gæti skógræktarfélagið látið framkvæma á eigin eign o. s. frv. Það er gott og gagnlegt að varpa fram tillögum. En það er eigi nóg. Framkvæmdirnwr mega ekki stranda, — allra sízt á þeim, sem framkvæmdamáttinn hafa. Sigurður Draumland.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.