Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 68

Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 68
176 NÁTTtJRUPRÆÐINGURINN iimiiiiimiliiiuiimimiimiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimimimiiimiiiiiiimiiiiiiiiMiiiiimiiimiiiimimmimiiiiiiiliiiiiliiliilil fyrir hendur að rannsaka áhrif sólbletta á trjávöxtinn. Hann tók til samanburðar vöxt risafurunnar í Kaliforníu og vöxt skóg- furunnar í Noregi, Svíþjóð og Þýzkalandi. Niðurstaða hans varð sú, að hann þóttist finna, að vöxtur trjánna gekk í bylgjum, og hver vaxtarsveifla stóð um 11 ára skeið, er svaraði til þess, sem kunnugt er um misjafnan styrkleik sólblettanna. Aðeins á tíma- bilinu frá 1650 til 1725 varð ekki vart við nokkrar slíkar sveiflur. En stjörnufræðingur nokkur enskur skýrði Douglas frá því, að á þessu árabili hefði engra sólbletta orðið vart, og þar með var sú sorg sefuð. Annars verður mjög að gæta þess, að samræmi í vexti ár- hringa getur oft aðeins náð yfir lítið svæði. Frá Noregi er það kunnugt, að þótt hið bezta sumar sé Austanfjalls, þá getur verið illæri í Þrændalögum og gagnkvæmt. En í árhringurunum mót- ast nákvæmlega, hver vaxtarskilyrðin eru á þeim stað, er tréð stendur. Líf allra jurta og dýra er háð fjölda lífsskilyrða. Þau verða ekki einungis að hafa næga fæðu, heldur einnig nægan hita og ljós. Ef ljósið er of lítið, þá þýðir það ekkert, þótt gnægðir séu matar, eða kjörhiti. Sá þáttur lífskjaranna, sem minnstur er mátt- ar, ræður því, hvort einstaklingurinn lifir eða deyr. Þessu hefir stundum verið líkt við tunnu, sem sett er saman af mislöngum stöfum. I henni verður ekki geymt meira vatn en jafnhátt lægsta stafnum. Ef vér nú gætum fyrirhitt einhvern þann stað á jörð- unni, þar sem vér vitum, að ætíð er nægur hiti, en úrkoma er af skornum skammti, þá er líklegt, að vér í árhringum trjánna get- um fengið nákvæmt mál þess, hversu úrkomu hefir verið háttað á liðnum tímum. Þau árin, sem úrkoma er næg, verður vöxturinn mikill, en hin árin lítill. Þessu er þó ekki svo háttað þar, sem risa- fururnar vaxa nú. Heimkynni þeirra eru skammt frá vesturströnd Ameríku, og gróðrarskilyrði eru þar ágæt, bæði nægur hiti og raki. Ef vér aftur á móti förum austur fyrir Klettafjöllin, finnum vér í ríkjunum Arizona, Utah, Colorado og New Mexico staði þar sem rannsóknir árhringa hafa gefið mestar og merkilegastar niðurstöður. Þar er að vísu kcmið út fyrir það svæði, sem risa- fururnar vaxa á, en starf það, sem þarna hefir verið unnið, er reist á rannsóknum þeim, er fyrr voru gerðar á risafurunum, svo að hér er viðeigandi, að geta um störf og rannsóknir prófessors Douglass og samverkamanna hans 1 þessum ríkjum. Mikill hluti landa þessara eru eyðimerkur, og víðast er úr-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.