Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1938, Qupperneq 45

Náttúrufræðingurinn - 1938, Qupperneq 45
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 171 þess að sjá hvert stefndi. Ég tel sennilegt, að saga Víðidals sýni oss, hver orðið hafa örlög margra eyðibýla í afdölum og heiða- löndum landsins. Það hefir ekki tekizt að koma upp viðunanlegu ræktuðu landi og bithaginn spillzt, sökum rányrkjunnar. En hefir ekki einnig þetta orðið einn þátturinn í að eyða byggðum hinna fornu íslendinga á Grænlandi? Þeirri spurningu verður ekki svar- að að sinni, en líklegt þætti mér, að nákvæm rannsókn myndi svara henni játandi. Thoroddsen notar dæmi Víðidals til að sýna fram á eina orsök skógeyðingarinnar hér á landi og mun það rétt, að fjárbeitin hafi þar átt mikinn þátt í. En í för skógareyðingarinnar fylgir jafnan uppblásturinn. Svo hefir þó eigi orðið í Víðidal. Ber þar tvennt til. 1 fyrsta lagi lagðist dalurinn aftur í eyði, skömmu eftir að Thoroddsen kom þar hið síðara sinnið, svo að byggðin stóð þar ekki nema tæpan hálfan annan áratug, en hins er einnig að gæta, að í svo skjólsömum dal er lítil hætta uppblásturs, enda þótt víðikjarrið hefði eyðzt með öllu. Þessa áratugi, sem liðnir eru síðan dalurinn lagðist í eyði, hefir gróðurinn smám saman verið að ná sér. Hann er að vísu ekki í fullkomnum friði, því að fjárbeit er þar nokkur á sumrin. En framan af sumri mun þó Víðidalsá nokkuð hindra ágang sauð- fjár í norðvestanverðum dalnum. Skal nú snúið að nútíðarlýs- ingu Víðidals. Gróður í Víðidal 1935. Sumarið 1935 átti ég leið um Víðidal og dvaldi þar nokkra daga, eða frá 2.—6. ágúst. Gerði ég mér þá far um eftir megni, að kanna gróður dalsins, einkum túnsins, til þess, ef unnt væri, að fá yfirlit yfir hverjum breytingum gróðurinn hefði tekið á þess- um tæpu 40 árum, sem dalurinn nú hefir verið í eyði, og jafn- framt að athuga, hvort hann væri nokkuð tekinn að líkjast því, sem var 1882. Skal nú hér gerð grein athugana þessara. Mun ég fyrst lýsa gróðri dalsins almennt, og þá einkum nágrenni bæjar- ins og neðanverðum hlíðum, en það er sá hluti hans, sem um er rætt í hinum eldri lýsingum. Síðar mun ég gera nána grein fyrir gróðri túnstæðisins, og tilgreina plöntulista þaðan. Botn dalkvosarinnar, er bæjarrústirnar eru í, er slétt grund, er hallar niður að Víðidalsá og smáá, sem í hana fellur og kemur úr norðaustri. Hefir hún átt verulegan þátt í að skapa undirlendi dal- kvosarinnar. Milli ánna er lágur ás. Á ofanverðri grundinni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.