Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1938, Síða 46

Náttúrufræðingurinn - 1938, Síða 46
172 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiMimmmiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiimMiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmimiiiiiiimiiimimiiimimiiiimiu standa bæj arrústirnar. I þeim og dæld framan við hlaðvarpann vex þróttmikið blómstóð, þar sem maríustakkstegundir (Alche- milla) og reyr (Anthoxanthum) eru ríkjandi plöntur (Sbr. töflu L). Út frá bæjarrústunum á alla vegu, en þó mest í áttina til ár- innar er graslendi. Er það auðsæilega túnstæðið gamla. Það er mjög grösugt, enda allmjög sinuborið, en mosi nokkur í rót. Ríkj- andi tegundir í graslendi þessu eru vallarsveifgras (Poa pra- tensis), Stinnastör (Carex rigida), fjallapuntur (Deschampsia alpina) og með blettum reyr (Anthoxanthum odoratum). Þá er þar og víða mikið af túnvingli (Festuca rubra) og vallelftingu (Equisetum pratense). Af jurtkenndum plöntum má helzt nefna engjafífil (Taraxacum croceum) og vallarsúru (Rumex acetosa). (Sbr. töflu I. 2 og töflu II. 1—3). Með jöðrum túnsins falla lækir í gilskorningum fram með þeim vaxa allstórir víðirunnar og blóm- stóð. Helztar jurtir þar eru: Blágresi (Geranium silvaticum), hnoðamaríustakkur (Alchemilla glomerulans), fjallasmári (Sib- Laldia procumbens) og brennisóley (Ranunculus acer). (Sbr. töflu I. 3 og töflu II. 5). Þegar fjær dregur bænum hverfur graslendið og grundin er al- vaxin víðirunnum, bæði grávíði (Salix glauca) og gulvíði (S. phy- licifolia), þó öllu meir hinum fyrrnefnda. Eru þeir víða 50—70 cm. háir og hinir þroskalegustu. Inni á milli þeirra er grasi vax- ið, og eru þar flestar hinar sömu tegundir og á túnstæðinu, en nokkuð í öðrum hlutföllum. Lítið er þar af blómjurtum, og engin áberandi (sbr. töflu II. 6). Þetta gróðurlendi, sem nú er lýst, er grundin, sem mest gekk í augun á Þorvaldi Thoroddsen 1882, sak- ir hins óvanalega gróðurs. Mundi hún vart gera það nú, og rnikið vantar á, að nokkurs staðar sé unnt að líkja henni við Slútnes í Mývatni. í brekkunni í kring er víða mjög gróðursælt og fjölgresi meira en á grundinni. Þar eru hvammar margir og bollar, og er þar víða skjólsamt og sólríkt, en snjóþungt mun vera þar á vetrurn, og oft mun snjóa leysa seint í Víðidal. Má ráða það af ýmsu, en auk þess segir Sigfús Jónsson í grein þeirri, er fyr er vitnað í, að þá er hann kom þar 1883 „í 8. viku sumars, var eigi sauðgróð- ur að kalla, utan hvönn, en eftir viku hafði gróður aukizt þar mikið“. Einnig getur hann þess, að fyrsta veturinn, er hann bjó þar, „voru hagar fram í miðgóu, en þá setti niður í austan og norðaustan átt snjó svo mikinn að eigi sá nema í hæstu kletta“. Það mun vera venja í Víðidal, að gróðurinn taki seint að spretta

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.