Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1938, Qupperneq 54

Náttúrufræðingurinn - 1938, Qupperneq 54
180 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN .immiiiiiimmiimimiimiiiimimimiiiiimMiiimiiimiiimiimmimimmiimmmmiiiiiiimiiimiiiiiiiiiimiimiimiiiiiiiiiiii stæðustu, en vitanlega á gróðurinn við margt að stríða uppi í fjalladal þessum. Að síðustu vil ég að nokkru athuga, hvað eftir muni vera af hinum eiginlega túngróðri í Víðidal. En til þess að skera úr því, vantar oss gögn um, hverjar tegundir hafi vaxið þar í túninu, meðan það var í rækt. Nokkuð má þó ráða þar um af líkum, þvf ac ætla má að tegundaval hafi verið þar líkt og í túnum, sem enn eru ekki komin í fulla rækt. Eftirfylgjandi tegundir tel ég líklegt að hafi vaxið þar: Grös: hálíngresi (Agrostis tenuis), týtulíngresi (A. canina), túnvingull (Festuca rubra), vallarsveifgras (Poa pratensis) og snarrótarpuntur (Deschampsia cæspitosa). Blóm- jurtirnar: brennisóley (Ranunculus acer), vallarsúra (Rumex acetosa) og túnfífill (Taraxacum acromaurum). Þá er og líklegt að illgresistegundir eins og vegarfi (Cerastium cæspitosum), haugarfi (Stellaria media), hjartarfi (Capsella bursa pastoris), hlaðarfi (Polygonum aviculare) og fylginautur þeirra, varpasveif- gras (Poa annua) hafi vaxið þar, því að þær eru alls staðar tryggir fylginautar mannanna, og hefi ég fundið þessar tegundir við án- ingarstaði leitarmanna uppi á fjöllum, þar sem áburður var í jörð. Ef vér lítum á töflurnar, þá sjáum vér brátt að lítið er orðið um flestar þessar tegundir, sem nú eru taldar og sumar finnast þar alls ekki. Engin hinna einæru tegunda er þar nú, svo að þær eru með öllu horfnar, hafi þær eitt sinn numið þar land, sem lík- legt má teljast. Af grösunum er Poa pratensis hið eina, sem enn er svo mikið af, að telst til hinna ríkjandi tegunda. Þá útbreiðslu þess tel ég að þakka ræktuninni, því að það nær hvergi jafnhárri hundraðstölu utan túnsins í Víðidal. Hálíngresi, vallhumal og snar- rótarpunt (Agrostis tenuis, Achillea millefolium og Deschampsia cæspitosa), fann ég hvergi í dalnum utan túns, en þar vaxa þær báðar enda þótt sáralítið sé um þær. Mun þarna einnig vera að ræða um leifar frá ræktaða landinu. Sama er að segja um tún- fífil (Taraxacum acromaurum), hann fann ég hvergi utan túns. Týtulíngresi (Agrostis canina), túnvh-gull (Festuca rubra) og sóley (Ranunculus acer), eru nú engu algengari á túnstæðinu en annars staðar í dalnum, aftur eru vallarsúra (Rumex acetosa) og vegarfi (Cerastium cæspitosum) öllu meira á túnstæðinu en í öðr- um gróðurlendum dalsins, og kynnu það einnig að vera leifar frá ræktuninni. Enn má geta þess, að fjallapuntur (Deschampsia alp- ina) vex miklu meira í túninu en nálægum gróðurlendum. Enda þótt hér sé eigi um venj ulega túnplöntu að ræða, kynni þó að vera,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.