Náttúrufræðingurinn - 1940, Blaðsíða 5
BJARNI SÆMUNDSSON
dr. phil. h. c.
F. 15. apríl 1867 — D. 6. nóvcmber 1940.
Hinn 6. nóvember 1940 varð íslenzka þjóðin að sjá á bak
einum sinna mætustu sona. Bjarni Sæmundsson féll þá í valinn,
eftir langan, vel nýttan starfsdag. Hann var kunnur hverjum
manni, sem les þetta tímarit. Náttúrufræðingurinn hefir misst
góðan vin og ötulan samstarfsmann, þegar Bjarni er farinn. En
þótt því hefði ekki verið til að dreifa, er margs að minnast í sam-
bandi við hinn heillaríka starfsferil dr. Bjarna Sæmundssonar,
sem Náttúrufræðingnum er skylt að gera nokkur skil.
Æviatriði. Bjarni Sæmundsson fæddist að Járngerðarstöðum
í Grindavík þ. 15. dag aprílmánaðar 1867. Foreldrar hans voru
þau Sæmundur Jónsson útvegsbóndi og kona hans, frú Sigríð-
ur Bjarnadóttir. Þegar á unga aldri vakti Bjarni Sæmundsson at-
hygli á sér fyrir gáfur og lá flest létt fyrir honum. Það kom
snemma í ljós, að hann var hagur mjög, og var því í ráði að hann
legði fyrir sig einhverja iðngrein og var sérstaklega hugsað um
skipasmíðar eða jafnvel ljósmyndagerð. Yfirleitt lágu hinum
unga manni margar leiðir opnar til fjár og frama, þar sem hæfi-
leikar voru fyrir hendi í ríkum mæli, skapfesta, þrautseigla og
reglusemi, fengnir í arf frá ættinni og allt þetta innsiglað með á-
hrifum hins prúða, góða, íslenzka æskuheimilis hans. Eins og títt
er um fjölgáfaða menn, var Bjarni Sæmundsson næmur fyrir á-
hrifum og hefur áhugi hans á náttúrunni sennilega vaknað
snemma. Og hvað var líka betur fallið til þess, að skapa undrun
og lotningu í senn, en hið mislynda úthaf, með spegilsléttum
fleti, víðum sjóndeildarhring og gjöfulli hendi annan daginn, en
fossandi brotsjóum og ógnandi grimmd hinn daginn. Eða þá hin
dökku fjöll og hraunið, með öllum sínum fylgsnum, angandi
blómum, stórvöxnum burknum og hraunbúum. Víst er um það,