Náttúrufræðingurinn - 1940, Blaðsíða 7
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
99
Olli það þeim hjónum mikillar
sorgar, einkum þó frú Steinunni.
Hinar dæturnar eru báðar á lífi og
er önnur þeirra, Anna Steinunn,
B. A., gift séra Einari Guðna-
syni, presti í Reykholti í Borg-
arfirði, en hin, Kristín, er gift
Marteini Guðmundssyni, mynd-
höggvara og teiknikennara í
Reykjavík. Árið 1928 andaðist
frú Steinunn, kona Bjarna, eftir
þungbæra vanheilsu í um það bil
áratug og bjó Bjarni eftir það einn
með dætrum sínum, en síðar hjá
tengdasyni sínum, Marteini, í
húsinu við Þingholtsstræti 14 í
Reykjavík, en það hús hafði Bene-
dikt Gröndal, náttúrufræðingur,
látið reisa 1881, en Bjarni keypti það 1904 cg var það heimili
hans síðan til dauðadags.
Lífsstarfið. Þegar Bjarni Sæmundsson byrjaði lífsstarf sitt árið
1894, eftir 11 ára nám, var hann aðeins 27 ára gamall. Yinnu-
dagur hans varð því langur eða 46 ár, og Bjarni Sæmundsson
vann á meðan dagur var á lofti. Hann sleppti sjaldan starfi úr
hendi og allt, sem hann hafði fyrir stafni, var unnið af hinni mestu
samvizkusemi cg vandvirkni.
Kennaraferill Bjarna Sæmundssonar við Menntaskólann myndi
einn nægur til þess að halda nafni hans á lofti, jafn vel og jafn
lengi og hann stóð. Þegar Bjarni tók við kennslu voru ekki til
neinar kennslubækur í náttúrufræði á íslenzku. Hann skrifaði
hverja bókina á fætur annarri og gerðist þvi brautryðjandi á
þessu sviði. Hvert mannsbarn á íslandi þekkir Náttúrufræðina
hans handa barnaskólum, en sú bók hefir nú verið kennd í öllum
barnaskólum landsins, þar sem náttúrufræði hefir verið höfð
um hönd, í yfir 40 ár. Eftir hann liggur einnig „Dýrafræði handa
gagnfræðaskólum,“ „Landafræði handa gagnfræðaskólum“ og
„Sjór og loft“ handa lærdómsdeildum Menntaskólanna- Kaflarn-
ir um manninn úr Dýrafræðinni og um ísland úr Landafræðinni
eru sérprentaðir sem sjálfstæð kver. Með þessum bókum sínum
hefur Bjarni Sæmundsson stórum bætt skilyrði til náttúru-
Bjarni Sæmundsson
á Hafnarárunum.