Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1940, Blaðsíða 32

Náttúrufræðingurinn - 1940, Blaðsíða 32
124 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN jarðfræðinga á myndun annarra basaltspildna við norðanvert Atlantshaf og í eyjum þess. T. d. taldi Þorvaldur Thoroddsen og fleiri samtímamenn hans, að basaltmyndun íslands hefði verið hlaðin upp að fullu löngu fyrir ísöld, og landslag meira að segja komið í líkt horf og nú er, áður en jöklar huldu landið. Fyrir h. u. b. 16 árum tókust tveir skozkir paleófýtólógar á hendur að rannsaka að nýju surtarbrandsflóruna skozku. Það voru þeir Seaward og Holttum, er vinna í þjónustu stofnunar- innar Geological Surrvey of Scotland. Stóðu þeir miklu betur að vígi en Heer og Gardner forðum að því leyti, að tækni til slíkra rannsókna hefur aukizt stórum á þessari öld, auk þess, sem nú er úr stærra safni að vinza til rannsóknar, og þróunar- saga plönturíkisins er nú betur kunn en á dögum Heers. Kom- ust þeir félagar að þeirri niðurstöðu, að Gardner landi þeirra hefði haft rétt fyrir sér, flóran var eósen, ekki míósen, eins og Heer vildi vera láta. Skozkir jarðfræðingar, sem nú eru uppi, viðurkenna nið- urstöðu Gardners — að því er ég bezt veit, einum rómi — og telja basaltflóruna skozku eósena. Fyrir bragðið eru þeir nú ekki lengur í vandræðum með að „koma fyrir“ hinu mikla svo- nefnda preglasíala*) rofi á síðari tímabilum tertíera tímans. Ætla menn nú helzt, að upphleðsla basaltmyndunarinnar hafi verið um garð gengin í lok eósentímabilsins eða einhvern tíma í ólígósen, en þá eru eftir bæði míósen og plíósen til preglasíala rofsins (8, 20, 9, 2, 5, 10 og 7). Á Austur-Grænlandi nær geysimikil samfelld basaltspilda frá Scoresby-sundi sundi að firðinum Kangerdlugsuak, en bæði sunn- ar og norðar eru smáblettir af ýmiss konar storkubergi, sem talið er jafngamalt og skylt meginbasaltinu, á víð og dreif á ströndinni. Brezkur bergfræðingur, að nafni Wager, hefur manna bezt rannsakað basaltspilduna sunnan Scoresby-sunds, en sænskir kollegar hans (Backlund o. fl.) lengra norður. Wager gizkar á, að þykkt basaltmyndunarinnar sé allt að því 5—6 þúsund metrar. Við Dalton-höfða, sunnan við Sc'oresby-sund, liggja sjávar- myndanir ofan á basaltinu. Daninn Ravn og fleiri steingervinga- fræðingar hafa ráðið aldur þessara laga af steingervingunum, sem *) Preglasíöl er sú myndun kölluð, sem varð á undan ísöld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.