Náttúrufræðingurinn - 1940, Blaðsíða 44
136
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
svonefnda ennisblaðra. Það er húðin á efri hluta höfuðsins, sem
getur þanist út, sem stafar af auknum blóðsstraum til höfuðs-
ins vegna þess að afturbolurinn dregst saman.
Um stund er flugan föl og veikbyggð, en styrkist smám sam-
an, þar til hún getur breitt úr vængjunum til flugs.
Það hafa allir veitt því eftirtekt, hvað flugunum er létt um
að fljúga. Og það er ekki nema eðlilegt þó menn spyrji: Hvað
geta flugurnar flogið langt? Og það er ekki aðeins að það sé
fróðlegt að vita það. Það er líka nauðsynlegt í baráttunni á móti
flugunum, í sambandi við útbreiðslu næmra sjúkdóma, sem þær
bera með sér. Og það er ekki aðeins nauðsynlegt að vita, hve
langt þær geta flogið, heldur einnig, hvað langt þær fljúga
venjulega.
Tilraunir hafa verið gerðar. Mikið af húsflugum hefir verið
merkt og þeim síðan sleppt á ákveðnum stað. Þær hafa síðan verið
veiddar í ýmsum áttum, sumar allt að 20 km frá burtfarar-
staðnum, enxaðrar nær. Flugurnar eru fljótar í ferðum. Eftir einn
dag náðist fluga 10 km frá burtfararstaðnum.
Hvers vegna fljúga flugurnar í burtu?
Aðalástæðan virðist vera sú, að þær séu að leita sér að fæðu
eða heppilegum stað til að verpa á. Einnig er álitið að þær hafi
tilhneigingu til að fara í langar ferðir. Þó telja menn líklegt, að
mest af þeim flugnastofni, sem klekst út á einum bóndabæ, sem
stendur afskektur, haldi sér þar að mestu leyti, þannig, að bónda-
bærinn framleiði sjálfur sínar eigin flugur.
Það er alkunnugt hvað flugur unna hlýjunni. Allir hafa vafa-
lauts veitt því eftirtekt á sólríkum sumardögum, hvernig flug-
urnar velja þá staði til þess að setjast á, sem skjóls og sólar
nýtur bezt. Þá er oft skemmtilegt að sjá flugurnar dansa kring-
um Ijósið og uppi undir loftinu, þar sem hlýindin eru mest.
Það er alveg sérstakt hitastig, sem á bezt við húsfluguna, eða
nærri því líkamshiti mannsins.
Að vetrinum verður húsflugunnar lítið vart. En þegar kemur
fram á vor, og dagarnir fara að verða hlýir, fara þær smátt og
smátt að sýna sig meir og meir. Þær koma þá inn í híbýli okkar,
því fleiri, sem lengra líður á sumarið. En hvaðan koma þær?
Koma þær frá sorphaugum og áburðarhaugum eða öðrum
stöðum, þar sem þær hafa klakizt út?
Ef til vill að einhverju leyti. En þó einkum frá peningshúsum
eða öðrum útihúsum.