Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 15

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 15
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 9 fyrsti dagurinn, sem hana hafði borið þar að landi þelta ár. Það var engu líkara, en að sjórinn væri vellandi og sjóðandi. Loðnutorfan var þétt eins og stappa, og l'yrir utan iiana öslaði þorskurinn áfram og svalg í sig matinn, þangað til hann gat varla lneyft sig. Okkur tókst að koma nót utan um torfuna og drógum hana upp í ljöru. Nótin var full af loðnu, en innan um hana voru 95 þorskar, stærri og minni, sumir meira en rnetri á lengd. I ákafanum gengu margir af þorskunum alveg upp að fjörugrjótinu. Hér hittu þeir fyrir gamla grænlenzka konu, sem vægast sagt var lurðuleg á að líta, ólnein og rilin. Efri hluti skinnsokkanna hékk í druslum niður á kálfa, og utan um ffókinn og votan hárlubbann hafði lnin vafið bandi, sem ekki var hægt að greina neinn lit á. Hún gætti þess að halda fast um háfskaftið og fikaði sig gætilega framar og framar eftir sleipu fjöru- grjótinu. Við og við tók hún snöggt viðbragð og hjó háfntnn niður í sjóinn. Þegar hún náði honum upp fyrir yfirborðið aftur, ltafði lnin veitt stóran þorsk. Hún rak upp fagnaðaróp og vappaði upp fjöruna með öllum þeim hraða, sem útskeifir fæturnir gátu látið henni í té. Þegar luin hafði bjargað veiðinni vel uridan sjó, greip hún um stirtl- una á þorskinum og sló hausnum á honum af alefli í klettana. Að því búnu var lagt af stað á ný, lil þess að ná í annan þorsk á sama liátt og áður. Þessa herferð endurtók hún að minnsta kosti 5—6 sinnum þá hálfu klukkustund, sem ég var þarna staddur. Þorskurinn var auð- sjáanlega afveg blindaður af græðginni og lét veiða sig í iítinn og ómerkilegan háf, alveg eins og hann væri tekinn upp úr sjókassa. Mikinn hluta sumars er þorskur nærri því eina nýja fæðutegundin sent völ er á í Suður-Grænlandi. Það er tilbreytingarlítill matur, en það er ekki urn annað að gera en framreiða hann á jafn fjölbreyttan liátt og efni standa til. Við Julianehaab gafst oft færi á að fylgjast með því, jregar fyrsti aðstoðarmaður verzlunarinnar ætlaði sér þorsk á miðdagsborðið. Þá kom vinnukonan hans hlaupandi út úr húsinu og dró ekki úr hraðanum fyrr en lnin var komin fram á klöpp, þar sent aðdýpi var mikið. Þar var rennt færi, og óðar en varði hafði hún náð í ágætis þorsk, sem hún slátraði þegar í stað með hníf sínum og bar heim í eldhúsið. Svo auðvelt gat það verið að afla sér matar í hádegisverðinn. Á stað, sem heitir Sydpröven, sá ég Grænlending, sent hvorki hafði bát né húðkeip. Hann bjó sig snemma af stað á ntorgnana og tók færið sitt með sér út á nes, þar sem hann gat veitt þorsk. Hann fékk að vísu ekki eins góðan afla og þeir Grænlendingar, sem bátana höfðu, en kippan, sem hann kom með á kvöldin og seldi verzluninni, var þó allvæn og gaf honum sæmilegan arð.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.