Náttúrufræðingurinn - 1946, Side 37
N ÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
31
Bjöm Franzson:
VetnLildi og lyíti
Allir kannast við lofttegundirnar, sem nefndar hafa verið vatns-
efni, súrefni og köfnunarefni, og mun mönnum yfirleitt bera saman
um, að þessi orð séu ekki alls kostar góð, sízt orðin súrefni og köfn-
unarefni. A síðustu árum hafa orðin vetni og ildi verið að ryðja sér
til rúrns fyrir orðin vatnsefni og súrefni, og er nú sýnt, að þau muni
verða ofan á.
Um þessar þrjár lofttegundir, sem eru meðal algengustu frumefna
og Idiðstæðar um margt flestum öðrum fremur, þyrftu nú að vera
til á íslenzku góð og þjál orð og mynduð á samsvarandi hátt að sínu
leyti eins og erlendu orðin hydrogenium, oxygenium og nitroge-
nium. En því verður ekki neitað, að orðið köfnunarefni sómir sér
ekki vel með hinum ágætu orðum vetni og ildi. I fyrsta lagi er það
þrem atkvæðum lengra en þau og myndað með allt öðrum Iiætti, í
öðru lagi er það fremur óþjált, og í þriðja lagi er það mjög órökvís-
lega hugsað. Orðið á að tákna þann eiginleika þessarar lofttegundar,
að hún kæfi eld. Samkvæmt þeirri hugsun ætti lofttegundin raunar
að Iieita kæfingarefni, því að köfnunarefni er ekki réttnefni á öðru
en því efni, sem kafnar, og verður því að teljast fjarstæða. En í raun
réttri væri það alveg jafnmikil fjarstæða að kenna efnið við kæfingu,
því að það kæfir alls ekki eld, þótt þessu sé að jafnaði haldið frafn.
Eldur logar glatt í venjulegu andrúmslofti, eins og Iiver maður veit,
þó að fjórir fimmtu hlutar þess eða því sem næst séu þetta svokall-
aða köfnunarefni. Eins víst er það, að jretta efni kæfir ekki menn eða
skepnur, sem soga það ofan í lungun í hverju andartaki. Þessi mis-
skilningur er sprottinn af þeirri staðreynd, að efnið getur ekki við-
haldið eldsbruna né bruna fæðunnar í líkömum manna og dýra.
Þess vegna kafna eldurinn og skepnurnar á stöðurn, þar sem jressi
lofttegund er ein saman. F.n jretta gildir raunar einnig um flestar
aðrar lofttegundir og jafnvel tómarúmið sjálft. Það er ekkert sér-
stakt köfnunarefni, sem köfnuninni veldur, heldur skortur á ildi.
Orðið ildi er myndað með hljóðvarpi af stofni orðsins eldur og
lýtur að jrví, að hlutaðeigandi efni er skilyrði Jress, að eldur geti
logað, fæðan brunnið í Hkamanum o. s. frv. Orðið vetni er kennt
við vatn, og er sú kenning ágætlega til fundin, jrví að segja má með
sanni, að vetnið sé aðalefni vatnsins. í liverri sameind vatns eru tvær
frumeindir vetnis, en aðeins ein frumeind af ildi, og sé vatninn