Náttúrufræðingurinn - 1950, Side 4
146
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
1 myncl. Hafstraumar í Norður-Atlantshafi samkvicint rannsóknum F. Hermanns. (liftir
H. E.: Euphausiacéa (1945)).
Fyrstu athuganir mínar á íslenzkri síld byggðust allar á gögnum,
sem Árni Friðriksson, forstjóri Fiskideildar, liefur látið safna á
undanförnum árum. Hefur hann komið íslenzkri gagnasöfnun í það
horf, að hún er sambærileg við það, sem tíðkast með öðrum þjóðum,
er leggja stund á fiskirannsóknir. Árni hefur á þessu sviði unnið
merkilegt brautryðjendastarf. Um ályktanir hans geta hins vegar
ávallt verið skiptar skoðanir, því að fræðimenn eru ekki alltaf sam-
mála um, hvernig skilja beri gögnin. Vísindalegar rökræður munu
smám saman greiða úr slíkum skoðanamun.
í upphafi rannsókna minna leiddi ég rök að því, að nauðsyn bæri
til að greina skýrt milli vorgots- og sumargotssíldar, meðhöndla
þessa kynstofna sem hreinar einingar, vegna þess að annars leiddu
aldursathuganir til rangra og mjög villandi ályktana. Sundurgrein-
ing þessara síldarkynstofna reyndist meiri erfiðleikum bundin en ég
eða aðrir höfðu gert sér grein fyrir, og það var ekki fyrr en sumarið