Náttúrufræðingurinn - 1950, Blaðsíða 33
MEÐALFELLSVATN
175
Áhöld, sem ég notaði, voru þessi: Málband með lóð á enda til þess
að mæla dýpi, 30 metra langt málband til þess að mæla fjarlægðir
milli athuganastaða, múrbor og hamar til þess að gera hæfilegar vak-
ir á ísinn, merkistengur og loks hornspegill til ákvörðunar á 90° og
180° horni.
Mælingarnar framkvæmdi ég þannig: Fyrst setti ég niður merki-
stengur með 100 metra millibili í beinni línu frá Meðalfelli að Eyj-
um (ytri bæ). Því næst mældi ég dýpið á vatninu eftir homréttum
línum út frá áðurnefndri línu. Mældi ég dýpið að jafnaði á 100
metra millibili og hafði 100 metra á milli lína.
Niðurstöðurnar eru sýndar á mynd 1. Punktarnir sýna athugana-
staði og tölurnar dýpið í metrum á hverjum stað. Á mynd 2 eru
dregnar dýptarlínur fyrir hvern metra og eru 5, 10 og 15 metra
dýptarlínurnar auðkenndar sérstaklega. Um niðurstöðurnar má í
stuttu máli segja þetta: Megin hluti vatnsins vestan Flekkudalsár er
grunnur, 2—4 metrar. Eystri hluti vatnsins er hins vegar alldjúpur,
5—18 metrar. Mesta dýpi mældist 18,45 metrar.
Við fjarlægðarmælingar á vatninu kom í ljós, að Herforingjaráðs-
kortið af Kjósinni gel'ur ónákvæman uppdrátt af Meðalfellsvatni.
Uppdráttur sá, senr sýndur er á mynd 1 og 2 er byggður á mælingum
á vegalengdunum frá „línunni" milli Meðalfells og Eyja að vatninu
og vegalengdunum yfir það. Meðfylgjandi uppdráttur af Meðalfells-
vatni mun því í meginatriðum réttur.
Reykjavík, 28. apríl 1950.
i)
Arni Friðriksson:
Landsvala (Hirundo rustica L.) heimsækir Vestmannaeyjar
Þegar ég dvaldi í Vestmannaeyjum dagana 0.—11. maí þ. á. vakti
það ánægju mína að sjá landsvölu, en þann fugl hef ég aldrei áður
séð hér á landi.
Mér varð gengið út á Eyðið sunnudaginn 7. maí um morguninn.
Veður var gott, nærri logn, hlýtt og úrkomulaust. Þegar ég ætlaði að
halda inn í bæinn aftur rétt eftir klukkan 10 varð ég var við að lítill
dökkleitur fugl straukst inn með brekkunni undir Klifinu og flaug
mjög nærri jörðu. Sá ég strax að um ekkert gat verið að villast; þetta
var svala, og sú tegundin, sem Iieitir fullu nafni landsvala. Fuglinn
flögraði þarna fram og aftur, ýmist inn með brekkunni eða út með