Náttúrufræðingurinn - 1958, Side 28
170
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
fljótlega skorizt sundur, ef vatn liefði runnið yfir hann. En litlu
liefur munað, aðeins fáeinum metrum, að útfallið yrði þarna en
ekki um núverandi útfallsskarð, þegar hækkaði í Langasjó fyrsta
sinni vegna jökulstíflu.
Ef rönd Vatnajökuls lægi 3—4 km framar en hún liggur nú,
væri núverandi útfall úr Langasjó lokað af jökli, vatnsborðið
mundi hækka, unz nýtt útfall yrði úr suðvesturenda vatnsins, en
það útfall mundi fljótlega skera sig niður og ræsa vatnið fram.
Staðhættir þeir, sem þegar hefur verið lýst, sýna, að þetta liefur
aldrei gerzt — ekki einu sinni í ísaldarlokin, meðan jöklar voru að
bráðna af hálendinu. Af þessu er ljóst, að ísaldarjökulinn hefur
ekki tekið seinna upp af innri enda Langasjóar, þeim sem nú veit
að jökli, en af hinum fremri. Þetta kemur vel heim við það, sem
áður var getið um skriðstefnu síðasta ísaldarjökulsins yfir Tungn-
áröræfum. Hjá Langasjó var sú stefna úr norðvestri, því sem næst
þvert á stefnu vatnsins. Ekki þykir mér ósennilegt, að isaldarjök-
ullinn hafi verið svo þykkur yfir Tungnáröræfum, að eftir veður-
farsbreytinguna til liins betra hafi hann enzt lengur þar en jafnvel
á þeim svæðum, sent skriðjöklar frá Vatnajökli hafa nú lagt undir
sig á síðustu árþúsundum.
HEIMILDARIT - REFERENCES
liemmelen, R. W. van Rutten, M. G. 1955. Tablemountains ol Northem
Iceland. Leiden.
Einarsson, Trausti 1946. Origin of the Basic Tuffs of Iceland. Acta naturalia
islandica 1.
ísajold 1878 (Fréttir): 96.
Kjartansson, Guðmundur 1943. Jarðsaga. Árnesinga saga 1: 46—250.
— 1952. Geologisk oversigt. Tfmarit V.F.Í. 37: 2—10.
— 1955. Fróðlegar jökulrákir. Náttúrufr. 25: 154—171.
— 1956. Úr sögu bergs og landslags. Náttúrufr. 26: 113—130.
Landndmabók 1946. íslendingasögur 1. Reykjavík.
Malhews, V. H. 1947. „Tuyas“, Flat-Topped Volcanoes in Northern British
Columbia. Amer. J. Sci. 245: 560-570.
— 1953. Ice-Dammed Lavas from Clinker Mountain, Southwestern British
Columbia. Amer. J. Sci. 250: 553—565.
Nielsen, Niels 1933. Contributions to the Physiography of Iceland. K. danske
Vidensk. Selsk., Nat. og Mat. Afd., 9 Række, IV. 5: 183—286.
— 1937. A Volcano under an Ice Cap, Vatnajökull, Iceland. Geogr. J.
40: 6-23.