Náttúrufræðingurinn - 1958, Blaðsíða 55
STÓRIR LAXAR
197
í ármótum Brúarár og Hvítár, og vóg hann 371/, pund, var 122
cm að lengd og 65 cm að ummáli. L.axinti var 6 vetra gamall, hafði
dvalizt 3 vetur í fersku vatni og 3 vetur í sjó og hafði ekki hrygnt.
í Hvítá í Borgarfirði hafa veiðzt tveir 36 pd laxar. Annar veidd-
ist í króknet frá Ferjukoti rétt fyrir 1920. Daniel Fjeldsteð, læknir,
vitjaði um netið, sem laxinn var í, ásanrt Sigurði bónda Fjeldsteð
í Ferjukoti, og hefur Daniel sagt höfundi frá laxinum. í netinu
var einnig 26 pd lax. Hinn laxinn var veiddur á stöng þann 22.
ágúst 1930 fyrir neðan Svarthöfða af Jóni J. Blöndal, hagfræðingi,
frá Stafohltsey.
í Laxá í Þingeyjarsýslu hafa veiðzt tiltölulega flestir stórir lax-
ar miðað við laxafjöldann, sem gengur í ána, og má því óhikað
telja hana mestu stórlaxaá landsins. Tveir 36y3 pd laxar hafa veiðzt
á stöng í henni, annar 1912 af L. S. Fortescue hjá Nesi, en hinn
af Jakobi Hafstein þann 10. júlí 1942 í Höfðahyl.
Til samanburðar við ofangreint skal þess getið, að í nágranna-
löndum vorum verður lax stærri en hér á landi. Stærsti lax, sem
veiðzt hefur í Skotlandi, vóg 103 ensk pd eða 931/^ íslenzkt pd.
Kom hann í net í Fortlifirði. Stærsti stangveiddi laxinn vóg 58 ís-
lenzk pd, og veiddi liann kona í Tayánni 1922. í Noregi veiddist
1928 72 pd lax á stöng í Tanaánni, og er hann stærsti Atlantshafs-
lax, sem veiðzt hefur á stöng. Metlaxinn í Svíþjóð veiddist í Fax-
ánni 1914 og vóg 72 pd. í Finnlandi veiddist 70 pd lax, 130 cm
langur, í Kymmeneánni 1896. Stærsti lax, sem veiðzt hefur í Dan-
mörku, fékkst í Skjernánni 1953, og vóg hann 53 pd. Hann var
136 cm á lengd og 70 cm að ummáli. Var hann því lítið eitt stærri
en Grímseyjarlaxinn.
Hér liefur verið sagt frá stærstu löxunum, sem höfundi er kunn-
ugt um, að veiðzt liafi í fersku vatni hér á landi og í sjó. Heim-
ildir, sem stuðzt hefur verið við, eru vafalaust ekki að öllu leyti
tæmandi, og má jrví vænta, að fram komi nánari vitneskja um
Jressa laxa. Þá má einnig við því búast, að fleiri laxar 36 pd eða
þyngri hafi veiðzt heldur en þeir, sem hér liefur verið rætt um, og
væri æskilegt, að fá fregnir af slíkum löxum.