Náttúrufræðingurinn - 1958, Síða 36
178
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
2. mynd. Teikning af rauðátu
(kvendýr); a lijartaslagæð; an enda-
jjarmsoj); br heili; g magi; h hjarta;
me auga; mo munnur; mxg kirtill;
o og odi eggjastokkur; od eggja-
giing; oes kok; os fitukirtill; sp op
kynfæranna; vnc taugastrengur.
Female Calanus from the side
(After Marshall ir Orr 1955).
við Austur-Grænland í heilt ár. í Faxaflóa lifir liver kynslóð um
tvo mánuði, en eitthvað lengra við norður- og austurströnd lands-
ins. Þegar þroskinn er eins ör og hér hefur verið nefnt og lífið
svo fljótt að líða, geta fleiri en ein kynslóð lifað á sama sumri.
Við suðurströnd íslands lifa að minnsta kosti tvær kynslóðir
rauðátu sumar hvert, og jafnvel þrjár í góðu sumri. Fyrsta hrygn-
ing fer fram í apríl, og þau dýr, sem þá klekjast úr eggi lirygna
svo í júní, og næsta kynslóð hrygnir svo jafnvel strax í ágúst. Þau
dýr, sem þá vaxa uppp, hrygna yfirleitt ekki um haustið, heldur
leita þau til botnlaganna. í hinum kalda vetrarsjó þroskast þau
mjög hægt og ná fyrst fullum þroska, er þau leita til yfirborðslaganna
undir vor og geta fyrstu kynslóð sumarsins.
Til skamms tíma var talið, að rauðáta hrygndi lítið eða alls