Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1966, Page 14

Náttúrufræðingurinn - 1966, Page 14
8 N ÁT T Ú R U F R K ÐINGURINN £yrir margháttaða fyrirgreiðslu og íræðslu, og Jakob heitinn Líndal, sem þeir heimsóttu að Lækjamóti í Víðidal og hittu aftur á rann- sóknasvæði sínu í Þingeyjarsýslu (að því er Baldur Líndal, sonur Jakobs, hefur tjáð mér). En auk þeirra, sem titlaðir verða jarðfræð- ingar, var a. m. k. nokkrum tugum ungra manna, sem ég hafði kennt jarðfræði í Verkfræðideild Háskólans fyrir 1950, vel kunnugt um kenningarnar þrjár um uppruna móbergsfjalla. — Þeir Bennne- len og Rutten vitna ekki heldur í Mathews og virðast ekki þekkja hans skýringu á myndun „tújanna" í Kanada og því síður þá til- gátu hans, að sú skýring eigi einnig við um þeirra „tablemountains" í Ódáðahrauni. Af því sem nú hefur sagt verið, má telja, að þrír aðilar, íslending- ur, Kanadamaður og tveir Hollendingar, hafi við rannsóknir hvcr á sínu svæði og óháðir hver öðrum komizt að sömu niðurstöðu um uppruna sömn fjallgerðar. Sú niðurstaða er upphleðslukenningin eins og hún var tilfærð hér að framan, mjög samandregin og þó í öllum meginatriðum. I þessari mynd mun hún hér framvegis köll- uð stapakenningin, og tek ég það nafn upp eftir Sigurði Þórarins- syni (1964). Eigi cr svo að skilja, að við, sem sett höfnm fram stapa- kenninguna, séum sammála um öll atriði hennar, en sá ágreiningur snertir ekki meginatriðin sem hér voru talin. Eftir hið veigamikla framlag þeirra Bemmelens og Rnttens má heita, að upphleðslu- eða stapakenningin sé tekin við af misgengis- kenningunni sem ríkjandi skoðun um myndun stapafjallanna. En réttur þeirra frumkvöðla hennar, sem þegar er getið, til heiðursins af því að hafa fyrstir fundið upp eða sett fram þessa skýringu er ekki svo óskoraður sem virðast kann af því sem að framan segir. Þjóðverjinn Oetting, sem ferðaðist hér um Kjöl og víðar sumur- in 1927 og 1928, aðhylltist raunar rofkenninguna um myndun stapa- fjalla yfirleitt, eins og fyrr var frá sagt. En samt gat hann þess til um Hrútfell á Kili, að jarðlagaskipun þess — þ. e. móberg neðan til og hraunlög yfir — stafaði af því, að þetta eldfjall hefði vaxið upp úr ísaldarjökli. Ég tók ekki eftir þessum ummælum Oettings, sem eru alveg í anda stapakenningarinnar, fyrr en nýlega, og hefur aldrei fyrr verið til þeirra vitnað í riti um stapafjöll. Vil ég nú ltæta fyrir mína yfirsjón með því að taka þau upp í heild orðrétt: „Hier liegt die Erklárung nahe, dass die Ablagerung in ihrer unteren Partie bei einem subgiazialen Vulkanausbruch gebildet ist
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.