Náttúrufræðingurinn - 1966, Qupperneq 22
16
NÁTTÚ RU F RÆÐINGURINN
og Lambahrauni, hvergi yfir 3°, ef mælt er á fáeinna km vegalengd.
Dyngja, sem myndast á jafnlendi, verður því sem næst kringlótt, og
hæðarlínurnar í hlíðurn hennar eru — að undanskildum óteljandi
smáhlykkjum — sammiðja hringar utan um gíginn. En í hliðarhalla
verður dyngjan skökk (t. d. Heiðin há). Dyngjurnar eru eingöngu
úr hrauni (engri gosmöl), það er ævinlega basalthraun og langvíðast
með helluhraunsyfirbragði. 1 flestum þversniðum dyngjuhrauna
kemur í ljós, að þau eru beltótt, þ. e. hvert lagið úr samfelldu hrauni
Iiggur yfir öðru, en lárétt skora eða frauðkenndara hraun á milli.
Algeng þykkt beltanna er \/2— 1 m, en hún getur verið miklu minni,
undir 20 cm. Yfirborð þeirra — hinna neðri ekki síður en hins
efsta — eru oft með skýrum rennslisrákum, hraunreipum. A mót-
um beltanna hafa hvergi fundizt nokkur millilög, er vitni um veru-
legan aldursmun efri og neðri belta. — Ég skal ekki lengja þetta
mál með nánari lýsingu á dyngjuhraunum, heldur vísa til rækilegri
lýsinga í ritum Þorvalds Thoroddsens og í merka ritgerð um Skjald-
breið eftir Tómas heitinn Tryggvason (1043).
í öllum framangreindum atriðum og fleirum er hraunbunga
Surtseyjar dæmiger dyngja. F.n hún er mjög skökk vegna halla
undirlagsins.
Ágúst Riiðvarsson forstjóri Landmælinga íslands ljósmyndaði
Surtsey úr lofti 25. ág. og 23. okt. 1964 og enn 24. ág. 1965 og
gerði af henni kort í mæliky. 1:10 000 eins og hún var þá hverju
sinni. Á öllum kortunum kemur dyngjulögun hraunsins vel lram
(3. mynd). Hvirlill dyngjunnar með hraungígnum er að norðan og
austan til hálfs umluktur túffbörmum hins víða þeytigígs, sem þar
var áður að verki. En svi mikla gígskál var opin til suðvesturs, svo
að um leið og hún fylltist sjálf, rann mestur hluti hraunsins í þá
átt fram úr henni og myndaði dæmigerva dyngjubrekku niður að
sjó. Samkvæmt síðasta korti Landmælinganna er hæð hvirfilsins
119 m y. s. og lengd brekkunnar þaðan til sjávar 1300 m í suður
og 650 í vestur. Meðalhalli í þessar áttir er því um 11° og 5°
(4. mynd).
Dyngjan í Surtsey er lítil í samanburði við flestar hinar fornu
dyngjur hér á landi, en þó ekkert einsdæmi að smæð. Rúmtak þess
híuta hennar, sem liggur yfir sjávarmáli reiknast mér 42 000 000 m;i
(þ. e. 0.042 km3) samkvæmt korti Landmælinga íslands eltir flug-
myndum frá 24. ág. 1965. Þessi tala er þó vissulega of lág, um