Náttúrufræðingurinn - 1969, Qupperneq 26
130
N ÁT TÚRUFRÆÐINGURINN
yfirborð hennar smálækkandi. Undir apríllok var hún orðin þakin
hraunstorku, en 28. apríl fór að lilaðast upp á henni klepra-
strompur eða hornító, sem var orðinn nær 10 m hár 18. maí. I
norðurbarmi hraungígsins má sjá örþunn hraunlög þeirrar gerðar,
er einkenna eldborgir, og slík lög er einnig að finna í yngsta gíg-
opinu í Surti yngra.
5. júni. Hraun sást í síðasta skipti rennandi í Surtsey og lauk þar
með Eyjaeldum, svo sem fyrr getur. Hraun hafði þá runnið stanz-
laust í 291 dag og þakti það hraun þá 100 ha, þar af 4 norðan á
eynni og 50 utan strandarinnar eins og hún var, er þetta hraun-
rennsli hófst. Flatarmál Surtseyjar var í goslok 280 ha. Langmest af
hraununum úr Surti eldra er helluhraun, en einhvern tíma á tíma-
bilinu frá miðjunr okt. til miðs des. 1966 myndaðist strengur af
reglulegu apalhrauni, sem fylgja má frá sjó langleiðina upp að gíg.
Heildarrúmmál hrauns þess, er myndaðist í þessum síðari hraun-
goskafla, er af stærðargráðunni 0.1 km3, eða svipað magn og í
Öskjugosinu 1961, en rúmmálið verður nrælt nákvæmar þegar lokið
er því korti, sem verið er að teikna í Sviþjóð eftir flugmyndum
Landmælinga íslands af Surtsey nokkru eftir goslok.
Heildarrúmmál gjósku, hrauns og hraunmalar í Eyjaeldum mun
vera 1.1 —1.2 km3, þar af um tveir þriðju hlutar gjóska. Ofansjávar
er nú tæplega tíundi hluti þessara gosefna. 9. nrynd sýnir snið af
Surtsey og neðansjávarsökkli hennar skv. dýptarkorti því, sem gert
var 1967. Skv. því korti er minnsta dýpi á Surtlu 31 m, á Syrtlingi
19 m, en á Jólni 13 nr. Talið er að sjávarrofs vegna öldugangs gæti
niður á um 30 m dýpi og verður fróðlegt að sjá, hvort sökklarnir
rofna langt niður fyrir það dýpi, svo og hvenær bólstrabergs fer að
verða vart í hvirfli þeirra. Á N—S sniðinu gegnunr Surt yngra hefi ég
ekki sýnt neitt bólstraberg út frá eldrásinni neðansjávar, því að þessi
eldrás lá upp gegnum gjóskulög úr eldra Surti, og mér er til efs,
að sá hryggur, sem hlóðst upp á sprungu eldra Surts fyrir 14. nóv.
1963, hafi náð vestur að ofangreindu N—S sniði.
EFTIRHREYTUR
Langt fram á sumar 1967 mátti af og til sjá vott af gufu við
hraunströndina nýju sunnan á Surtsey þegar sjór braut þar á og
mun þar hafa verið grunnt á glóð, en í glóð sást í djúpum sprungum