Náttúrufræðingurinn - 1969, Qupperneq 29
N ÁT T Ú RU F RÆ ÐINGURINN
133
V. Annar sprengigosþáttur, 22. maí 19(55—17. okt. 1965:
Eyjan Syrtlingur hleðst upp, 0.6 km NA af Surtsey. Mesta
hæð hennar varð um 70 m, mesta flatarmál um 15 ha. 24. okt.
var eyjan horfin.
VI. Þriðji neðansjávarþáttur, (síðari hluti okt.) 1965-26. des. 1966:
Neðansjávarsökkull Jólnis hleðst upp.
VII. Þriðji sprengigosþáttur, 26. des. 1965—10. ágúst 1966:
Eyjan Jólnir hleðst upp, 0.9 km SV af Surtsey. Mesta hæð
hennar varð um 70 m, rnesta flatarmál um 30 ha. 20. sept. var
eyjan horfin að heita mátti.
VIII. Síðari ofansjávar hraungoskafli, 19. ágúst 1966—5. júní 1967:
Aðalgosið úr sprungu í Surti eldra. Yngra hraunið þakti
í goslok 100 ha og flatarmál Surtseyjar í goslok var 280 lra.
Þess er að geta, að samtímis sprengigosinu í Surti eldra, undir
árslok 1963 og fyrstu daga janúar 1964, var neðansjávargos á
sprungu, um 300 m langri, 2.5 km ANA af Surtsey, og hlóðst þar
upp hryggurinn Surtla, næstum upp að sjávarmáli.
Hinn 28. febrúar 1964 sást ólga í sjávarborði skammt N af Surtsey
og var þar í kring allstór mórauður flekkur, en í sjónum mátti rekja
litaskipti langleiðina að Geirfuglaskeri. Þessi ólga var alveg horfin
síðari hluta næsta dags, en á dýptarkortum gerðum 1966 og 1967
má sjá, að þar undir, sem ólgan var, er hryggur sem rís 8—10 m yfir
neðansjávarbrekkuna í kring, en hæsti punktur hans er á 78 m dýpi.
Þarna mun hraun hafa þrengt sér út, líklegast úr æð, sem tengd var
aðáleldrásinni ofan gamla sjávarbotnsins.
Frá apríllokum 1964 til 9. júlí s. á. var hlé á yfirborðsrennsli úr
hraungígnum, en hrauntjörn kraumaði þar án afláts. Líklegt er að
á þessu tímabili hafi myndazt að rneira eða minna leyti sá neðan-
sjávarhryggur SSV úr Surtsey, sem fram kemur á dýptarkorti Sjó-
mælinga íslands, sem byggt er á dýptarmælingum framkvæmdum
í júlí og ágúst 1964. Þessi hryggur var að líkindum úr bólstrabergi
að verulegu leyti, en ekki er hægt að segja með vissu, livort þarna
hefur opnazt ný sprunga á sjávarbotni eða hvort hryggurinn á upp-
tök sín í eldrás hraungígsins í Surtsey.
Vera má einnig, að á sama tímabili séu myndaðir þeir tveir styttri
V hryggir, er ganga til SV og V út frá sökkli eyjarinnar skv. áðurnefndu
Mdýptarkorti. Þessir tveir hryggir eru vafalítið myndaðir á svipaðan