Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1969, Side 73

Náttúrufræðingurinn - 1969, Side 73
NÁTTÚ RU FRÆÐINGURINN 177 Olíuhör er náskyldur spunahör eða afbrigði af honum. Hýðis- aldin hans opnast skyndilega og þeyta frá sér fræjunum. Olíuhör er lágvaxnari og greinóttari en hinn, en ber fleiri og stærri blóm og aldin, enda ræktaður vegna fræjanna, sem pressuð er línolía úr. Olíukökur til fóðurs eru unnar úr afganginum. Línolían er kald- pressuð úr fræjunum í olíumyllum og mikið notuð við matargerð og í sápur o. fl. iðnaðarvörur. Hörfræ slíma í raka. Þau eru seld í lyfjabúðum sem rnilt hægðalyf. Olíuhör er mjög mikið ræktaður í Argentínu, Bandaríkjunum, Kanada, Indlandi og Pakistan. En um % spunahörframleiðslu heimsins kemur frá Sovétríkjunum. Mikið af spunahör er og ræktað í Hollandi, Belgíu, Frakklandi, Póllandi og írlandi. Eru t. d. miklar og gamalkunnar hörspuna- verksmiðjur í Belfast á írlandi. Gæði hörsins þykja mest, þar sem hann er ræktaður í röku loftslagi. — Spunahör er (ásamt liveiti og byggi) með elztu nytjajurtum veraldar. Vita menn ekki glöggt um uppruna hans, en helzt er hann talinn ættaður frá V-Asíu, korninn af einærum og fjölærum tegundum, sem þar vaxa villtar enn í dag. Hör mun hafa verið ræktaður í Indusdalnum, Egyptalandi, Mesapótamíu og Sýrlandi í 5—6 þúsund ár að minnsta kosti. Hið forna staurahúsafólk í Sviss þekkti hörrækt og hördúka fyrir 4 þúsund árum. Þetta sýna fornleifar. Á dögum Forn-Grikkja og Rómverja var rnikil hörrækt í Miðjarðarliafslöndunum. Norður- landabúar lærðu að rækta hör og vefa hördúka á járnöld, í Dan- mörku t. d. á fyrstu öldum e. Kr. Áður var eingöngu notaður ullarfatnaður og skinn í norðlægum löndum. Á 13. öld var mikil liörrækt í Slésíu og síðar einnig í Vestfalen og víðar á þeirn slóðum. Voru vandaðir hördúkar seldir þaðan suður til Spánar, Italíu og jafnvel til Austurlanda. En síðan á 19. öld hefur baðntullin verið skæður keppinautur, svo dregið hefur úr hörræktinni. Baðmullar- framleiðslan er ódýrari. Lítum aftur til fortíðarinnar. I Egyptalandi eru til veggmál- verk frá þriðja árþúsundi f. Kr. og eru á þeim sýndar aðferðir við vinnslu hörsins. í grafhýsum Egypta hafa fundizt margir smyrlingar (ntúmíur) hjúpaðir í hördúka, er varðveitzt hafa furðan- lega vel í hinu þurra loftslagi. Finnast bæði stórir dúkar — um 20 m langir, og fíngerðir kniplingar. Alls þurfti unt 70 m af hördúk- um til að sveipa um einn smyrling. Egyptar, Grikkir og Rómverjar notuðu hör m. a. í net og segl, oft fagurlega lituð. Náttúrufræðing-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.