Náttúrufræðingurinn - 1969, Qupperneq 76
180
NÁT T Ú RU F RÆ ÐINGURINN
Fræ kvenjurtanna er olíuríkt og er víða um heim hagnýtt sem
fuglafræ og alifuglafóður, einnig í olíumálningu o. 1:1.
Ur indversku hampjurtaafbrigði hafa lengi verið unnin nautna-
lyf í Austurlöndum. Síðar hefur notkunin færst yfir í vestræn lönd
einnig. Ur þurrkuðum, ungum blómskipunartoppum er hægt að
framleiða liin illræmdu nautnalyf „Haschich“ eða „marihuana“,
blandað ýmsum kryddefnum til að draga úr slæmri lykt og beisku
bragði. „Haschisch“ er tuggið, reykt eða drukkið. Egyptar tóku
a. m. k. um skeið það ráð til varnar að draga tennur úr neytend-
unum. Eiturefnið í hampjurtinni myndast ekki að mun nema í
heitu loftslagi. Gríski söguritarinn Herodot skrifaði meir en fjórum
öldum fyrir vort tímatal, að þjóðflokkurinn „Skyþar“ í Suður-
Rússlandi tæki hampfræ, kastaði þeim á glóandi stein í tjöldum
sínum, önduðu síðan að sér svælunni og öskruðu af kæti. Á tímum
krossferðanna gekk múhameðskur trúárflokkur bershrksgang í
orrustum undir „hampáhrifum“ líkt og talið er, að norrænir víking-
ar hafi gert eftir að hafa etið berserkjasvepp. Hampur var og not-
aður sem læknislyf á fyrri öldum.
III. Humall (Humulus lupulus).
Kenndur við úlf (lupus), kannski af því að hann vefur sig utan
um aðrar jurtir og getur skemmt þær. Humall er e. t. v. uppruna-
lega Evrópujurt. Var í fyrstu ræktaður og hagnýttur til lækninga,
gegn blöðru- og magakvillum. En munkar, sem margir hverjir voru
færir bruggarar, fundu með rannsóknum að humall bætir öl, gefur
því sérkennilegt, beiskt bragð og eykur geymsluhæfnina. Vall-
h u m a 11 mun fyrir ævalöngu liafa gegnt svipuðu hlutverki, en
þótti ekki eins góður. Síðar var notað mjaðarlyng (Pors, Porsöl),
en nú má humallinn kallast allsráðandi. Humall er fjölær vafnings-
jurt sömu ættar og hampur. Stöngullinn vefur sig eins og gormur
um mjóa hluti, t. d. prik og bönd og getur þannig klifrað í 3—6
m hæð. Hann vefur sig jafnan til hægri, í sömu átt og vísir á klukku,
þ. e. rangsælis. Stinn krókhár á stöngli halda honum föstum. Blöð-
in eru stór, snörp og þríflipuð. Humallinn er sérbýlisjurt, blómin
ósjáleg. Blómskipanir kvenjurtanna líkjast könglum og eru græn-
leitar eða móleitar á lit. Þessir kvenhumlakollar eru notaðar við