Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1969, Síða 86

Náttúrufræðingurinn - 1969, Síða 86
190 N Á T T Ú R U F R Æ Ð1N G U RIN N Erfitt reyndist að afla sýnishorna af fersku, óummynduðu eða óholufylltu bergi úr eldri hluta tertíeru blágrýtismyndunarinnar vestanlands. Þó tókst að ná ágætum sýnishornum úr basaltlagi bak við naglaverksmiðju Borgarness. Reyndist aldur þess vera 13,2 ± 2 milljón ár eða frá mið-míósen. Vegna mjög lítils K-innihalds í þessu bergi getur aldursgreiningunni skeikað um 2 milljónir til eða frá. Frá Vestfjörðum var mældur K-Ar-aldur fimm hraunlaga á Breiðadalsheiði í 500—G00 m hæð. Þessi sýnishorn, sem tekin voru úr borholu á háheiðinni, voru jafn fersk og nýrunnin hraun, en gefa samt hæsta aldur, sem mælzt hefur í íslenzku bergi enn sem komið er, eða 16,0 ± 0,3 milljón ár. Undir þessum basalt- lögum á Breiðadalslieiði er a. m. k. 1000 m þykkur basaltlagastafli fyrir ofan sjávarmál, en ekki reyndist unnt að afla óummyndaðs basalts neðar. Minniháttar mislægi er einnig í basalthlaðanum í Onundarfirði, Skutulsfirði og víðar undir aldursákvörðuðu hraun- unum, og hljóta þessi neðstu lög að vera nokkru eldri en lögin á Breiðadalsheiði. Auk ofangreindra aldursákvarðana eru hér birtar í töflunni niðurstöður K-Ar-aldursákvarðana á bergi úr djúpbergsinnskot- unum Flyðrum í Hafnarfjalli og Fystra- og Vestrahorni í Lóni, en í berginu í þeim eru kalíumríkar steintegundir. Nákvæmni K-Ar-mælinga byggist að nokkru leyti á magni kalíums í berg- tegundinni. Ef kalíum-ríkar steintegundir eru í berginu, t. d. sanidín-feldspat eða dökkur giimmer (bíótít), eru þær skildar frá öðrum steintegundum bergsins. Fást þannig sýnishorn með mun hærra K-innihald en ella. Dökkur glimmer finnst víða í gabbrói í Eystrahorni, og samkvæmt K-Ar-mælingu storknaði berghleifur- inn fyrir 6,6 ± 0,4 milljón árum. Einnig hefur dökkur glimmer úr jaðri granófýrs í Vestrahorni verið aldursgreindur. Aldurinn reyndist einnig vera 6,6 ± 0,3 milljón ár. Aldursákvarðanir þessar eru í góðu samræmi við eldri aldursákvarðanir á þessum berg- hleifum, og benda þær til ])ess, að fyrir 6—7 milljónum ára, þ. e. á plíósen, hafi mikið magn af hraunkviku brotizt upp í basalt- hlaðann á Suðausturlandi, kólnað og storknað á miklu dýpi undir yfirborði (1—2 km) og myndað berghleifa af gabbrói og granófýri. Mynd 2. Tímatal jarðsögunnar írá lokum krítartímabils. Aldur er í milljónum ára. Aldur þeirra jarðmyndana, sem rætt er um í lesmáli, er settur inn í töfluna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.