Náttúrufræðingurinn - 1976, Page 30
132
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
VI Snarpur. Allir finna jarðskjálftann og flestir verða óttaslegnir og
flýja úr húsum. Þung húsgðgn geta hreyfst úr stað. Myndir, bækur o.
jj. 1. falla af veggjum. Hlaðnir, ólímdir steinveggir geta hrunið að
nokkru leyti.
VII Mjög snarpur. Allir flýja út úr húsum. Þung húsgögn og liúsmunir
falla og geta skemmst. Mjög lítið tjón á vel byggðum húsum. Talsverð-
ar skemmdir á illa byggðum húsum. Finnst af fólki, sem ekur i bíl.
Gruggugar öldur myndast á tjörnum og stöðuvötnum vegna leðju, sem
hrærist upp frá botninum.
VIII Harður. Þyngstu húsgögn færast allmikið úr stað eða velta um koll.
Litlar skemmdir á best byggðum húsum, talsverðar á venjulegum bygg-
ingum og miklar á illa gerðum húsum. Um fjórðungur húsa í þéttbýli
skemmist og mörg hús verða ónotliæf til íbúðar. Timburhús skekkjast.
Reykháfar, súlur og myndastyttur velta eða hrynja. Allmikil skriðuföll,
þar sem jörð er mjög blaut og brött.
IX Mjög harður. Unt helmingur steinhúsa eyðileggst og sum hrynja til
grunna, en flest verða ónothæf til ibúðar. Jarðleiðslur slitna.
X Eyðandi. Um y4 allra steinhúsa eyðileggst, flest jjeirra hrynja til
grunna. Vel byggð timburhús og brýr stórskemmast og einstaka eyði-
leggjast. Stíflu- og flóðgarðar verða fyrir miklum skemmdum. Leiðslur
í jörð (vatns- og gasleiðslur o. fl.) rifna sundur og skekkjast. Sprungur
koma í malbikaðar götur. Mikil skriðufiill og grjóthrun úr fjöllum. Yfir-
borð á lausum sandi breytist allmikið. I ám og vötnum myndast öldur,
sem ganga á land.
XI Mjög eyðandi. Öll steinhús Iirynja. Einstaka vel byggt timburhús
stendur lítið skemmt. Best byggðu brýr stórskemniast, stöplar brotna
sundur o. s. frv. Stíflu- og flóðgarðar springa og stórskemmast. Jarð-
leiðslur eyðileggjast. Oft sjást miklar breytingar á yfirborði jarðar, og
fer Jjað mest eftir gerð jarðlaganna. Mikil skriðuföll og grjóthrun.
XII Gjöreyðandi. Næstum öll mannvirki eyðileggjast. Breytingar á yfir-
borði jarðar geta orðið mjög miklar. Miklar breytingar verða á vatns-
rennsli í bergi og jarðvegi. Fossar myndast, viitn færast úr stað og
breyta farvegi sínum.
Viðauki 2. Stœrð jarðskjdlfta
Fyrsta skilgreining Richters á stærð M var einföld.
þar sem A er útslag, sem skjálfti veldur á mæli og A0 er útslag, sem viðmiðunar-
skjálfti frá sömu upptökum veldur á sama mæli.