Náttúrufræðingurinn - 1976, Page 56
158
NÁTTÚ RUFRÆÐI NGURINN
fæðuúrval ekki lengra en svo, að fiskurinn hættir að velja þegar
ekki „borgar“ sig lengur að eltast við uppáhaldsfæðuna, vegna þess
að of lítið er orðið af henni. M. ö. o. fiskar eru yfirleitt eins hag-
sýnir í fæðuvali sínu og séreiginleikar þeirra leyfa.
Þegar fleiri tegundir lifa í sama vatni, neyða þær hverja aðra að
slá af kröfum sínum, ef þær hafa svipaðar neyzluvenjur. N.A. Nils-
son (1963) hefur kannað fæðuval urriða og bleikju meðal stofna,
sem lifa annars vegar hvor í sínu lagi og hins vegar saman. Hann
liefur fundið, að fæðuval þeirra er mjög svipað, þegar þeir lifa hvor-
ir í sínu lagi, og fer það fyrst og fremst eftir þeim fæðutegundum,
sem fyrir hendi eru. Þegar þeir lifa saman, neyða þeir hvorir aðra
til að sérhæfa sig, og lifir bleikjan þá meira á svifdýrum en urrið-
inn á botndýrum og fiski.
í Mývatni lifa, eins og áður er sagt, bleikja, urriði og hornsíli.
Af urriða er tiltölulega lítið, og getur hann því varla haft teljandi
áhrif á fæðuval hinna, en bleikjan og hornsílið finnast aftur á móti
í því magni, að áhrifa kann að gæta á fæðuval hvors annars.
I Mývatni er um margar fæðutegundir að velja, ef á heildina er
litið, en fjöldi þeirra og innbyrðis hlutfall, er breytilegt eftir árs-
tíma, og hefur það mest áhrif á fæðuval fisktegundanna.
Eftirfarandi tafla sýnir þær fæðutegundir, sem eru algengastar,
og hvenær árs þær finnast mest:
Tegund Tími
Mý (rykmý), mest Tanylarsus gracilenlus og
Chironomus hyperborus
(Lindegaard og Jónasson in prep.)
-lirfur: allt árið, en minnst um hásumarið
-púpur: vor og fyrri hluta sumars
-flugur: vor og fyrri hluta sumars
Hornsíli: allt árið
Vatnabobbar (Lymnaea): allt árið
Botnkrabbar
Skötuormur (Lepidurus arcticus):
Vatnsflær (Eurycercus lamellatus o.fl.):
Svifkrabbar
Stökkkrabbi (Cyclops sp.):
sumar (júlí—ágúst)
sumar (júlí—ágúst)
Langhalafló (Daphnia longispina):
vor og sumar
(maí og júlí)
Síðari hluta sumars,
haust