Náttúrufræðingurinn - 1976, Qupperneq 63
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
165
sílin lifi af smærri fæðudýrum en 8 cm hornsílin, og er því eðlilegt
að finna hjá þeim meira af botnkröbbum en í stærri hornsílunum.
Annars fellur fæðuval 3 cm hornsílanna frá 1969 ágætlega inn í þá
þróun „mýlirfur í júlí til botnkrabba í ágúst“, sem var árið 1973.
í nokkrum hornsílum á fyrsta ári sem Arnþór athugaði (pers. uppl.)
fundust nr. a. þvrildýr og smá krabbadýr, sem annars hafa alls ekki
fundizt eða þá mjög sjaldan í fæðu fiskanna.
Yfirlit og samanburður við Lamby
Sanranburður við Lanrby er ýmsunr erfiðleikum bundinn, eink-
um vegna þess að hann hefur lítil gögn frá sumar- og haustmánuð-
um en hins vegar bætir hann upp þann skort á vetrarsýnum, sem
nrínar rannsóknir búa við. Þar að auki er mest af sýnum hans úr
Bolum og að miklu leyti úr fiski stærri en 30 cm. Samkvæmt Lamby
eru mýlirfur mikilvægasta fæðutegundin, Jrar næst nefnir hann
hrogn, sem gæti virst alvarlegt, en bleikja nær aðeins þeim hrogn-
um, sem hafa hafnað of grunnt og eru af þeirn sökunr hvort eð er
glötuð, t. d. til annarra dýra, eða vegna núnings, sem gerir svepp-
um og gerlum kleift að herja á þau. Einnig vantar seiði, sem klekj-
ast úr slíkum hrognum nauðsynlegt skjól, meðair þau eru senr við-
kvæmust. Krús étur hrogn í enn ríkara mæli en bleikja en sækir
einnig fyrst og fremst í þann hluta hrognanna, sem lýst er hér að
ofan. í þriðja lagi nefnir lrann hornsíli, og er hlutur þeirra í fæð-
unni minni en fjöldi þeirra gefur tilefni til, sem er í samræmi við
mína reynslu.
Fjórða mikilvægasta fæðutegundin er Daphnia longispina.
Lamby telur hana réttilega vanmetna, vegna Jress hve fá sýni eru
frá síðari lrluta sunrars. Lanrby varð aldrei, frekar en ég var við
bleikjuseiði í fæðu bleikjunnar. Eins og áður er nefnt taka vatna-
fiskar megnið af vextinunr út yfir sumarmánuðina, Jrá er venju-
lega meira franrboð á fæðu. Vegna Jress hve lreitt er í vatninu yfir
sumarmánuðina, fer einnig mun nreira af fæðunni til viðhalds lífs-
starfseminnar. Þegar á heildina er litið nrun neyzla þeirra yfir
veturinn því aðeins nema broti af Jrví sem hún er frá vori til hausts.
Það er Jrví auðsætt, að Jregar fæðunni er raðað niður eftir mikil-
vægi, verður að taka mest tillit til sumarsins. Mýflugan (lirfur,