Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1979, Page 31

Náttúrufræðingurinn - 1979, Page 31
einclir í ákveðna átt, þó öll keðjan gæti það ekki í lieild. Einnig var hægt að einangra rafeindabera og sýna fram á að þeir starfa í raun eins og til var ætlast. Lífhvatinn ATPasi (-asi er alþjóð- leg ending fyrir ensim), sem síðan virkjar orkuskammtana, er rafeind- irnar gefa lrá sér til myndunar ATP, getur einnig hvatað hvarfið ADP + P + orka <—> ATP jafnvel í báðar áttir, en aðeins ef hann er staðsettur í heilum frumum eða lokuðum himnubólum. Ef hvatinn er einangr- aður þá getur hann einungis klofið Al’P og orkan tapast. Það rná því líkja RFK við rafal, sem breytir einu formi orku (vinnu) í annað (rafmagn), sem er geymt í orkuhlöðu (rafhlöðu). ATPasinn (mótor) er síðan tengdur orkuhlöð- unni, þá getur hann framkvæmt vinnu og flutt orkuna úr orkuhlöðunni yf- ir í enn annað form, sem er orkuríkt efnatengi í ATP sameindinni. Þegar ATP er einungis myndað með gerj- un þá starfar RFK ekki og því verður ATPasinn (eins og mótorinn) að snú- ast í hina áttina og lilaða orkuhlöð- una með því að kljúfa ATP. Menn gerðu sér einnig ljóst að starfandi frumur þurfa að standa í miklum flutningum á efni yfir frumu- himnuna og þurfa að geta stjórnað mjög nákvæmlega hvað er flutt inn og hvað út og að þessir flutningar kröfðust orku. Hugmyndir Mitchells hafa vcrið kallaðar „osmósukenningin" og cr henni best Jýst í endurbættu formi, sem Mitchell birti 1966 og er í fjórum meginatriðum. I. Hvatinn ATPasi situr í himnu orkukorna, grænukorna og gerla. ATPasinn getur myndað eða rofið ATP og um leið tekur hann inn eða dælir út vetnisjónum. 2. Rafeindaflutningskerfið, sem stjórnar flæði afoxandi eininga (vetn- is eða rafeinda), notar orku þeirra til að dæla vetnisjónum (prótónum, H+) út ylir himnuna. Við það yrði ytra umhverfið súrt miðað við frymið og innra borð himnunnar mínus hlaðið miðað við ytra borðið. Vetnisjónirn- ar myndu því hafa mikla tilhneigingu til að llæða aftur inn og mögulegt væri að láta þær framkvæma vinnu í leiðinni. 3. í himnunni sitja sérvirk flutnings- kerl'i, sem stjórna skiptum á anjón- um fyrir OH- og katjónum fyrir H+ yfir himnuna. Hlutverk þessara kerfa er eftirfarandi: a. að stjórna sýrustyrks- osmótískum hallanda (ApH og himnuspennu) yfir himnuna. I). að leyfa flutning nauðsynlegra efna inn og út án þess að brjóta niður himnuspennuna. 4. Kerfin í lið 1, 2 og 3 eru staðsett í himnunni, sem er ógegndræp fyrir flestum jónum, sérstaklega H+ og OH~. 1 framhaldi af þessu útskýrði hann einnig aftenglana sem efni er öll gætu flutt jónir yfir himnur og þann- ig brotið niður sýrustyrkshallandann, scm hann sagði að væri í raun orku- hlaðan fyrrnefnda. Þegar Mitchell fyrst birti kenning- ar sínar 1961, þá vöktu þær litla at- Itygli og voru vægast sagt ekki teknar alvarlega. Það var því ekki fyrr en 1966 sem þær konui almennilega fram í dagsljósið. Þá voru flestir vísinda- menn sem unnu að rannsóknum í 125
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.