Náttúrufræðingurinn - 1979, Blaðsíða 125
Taflan sýnir að verulega áberandi
munur er á þessum hraunum hvað
varðar titan (TÍO2). Eldgjárhraunin
skera sig þar mjög úr með 4,21% TÍO2
á móti 2,5 að meðaltali fyrir hin
hraunin. Hins vegar sýnast litlir
möguleikar á að skilja að Skaftárelda-
hraun á bergfræðilegum eða efna-
lræðilegum grundvelli. Virðist a.rn.k.
til þess þurfa bæði mikið efni og mjög
nákvæma rannsókn. Santa gildir raun-
ar um hraun af Eldgjársvæðinu inn-
byrðis.
Aldur Eldgjárhrauns i Landbroú.
Unt aldur hrauns þess er Landbrots-
byggðin stendur á, liefur ýmislegt ver-
ið ritað, en Thoroddsen (1925) mun
fyrstur manna hafa vakið máls á því
og taldi líklegt, að hraunið hefði
runnið nálægt 950. Almennt var þetta
því haft fyrir satt þar til Sigurður
Þórarinsson (1955) lét í ljós aðra skoð-
un. Loks kom svo aldursákvörðun
gerð í Uppsölum í Svíþjóð á birki-
lurkum, sem ég fann í rofinu hjá
Ytri Dalbæ 1953. (Jón Jónsson 1958).
Kom þá í ljós, að liraunið lilaut að
vera a.m.k. 2000 ára gamalt. Það mun
hafa verið 1962 að mér varð ljóst að
sýni það, er ég hafði tekið og látið
aldursákvarða væri úr efri hluta
lurkalags, sent þarna er og mundi því
sýna miklu lægri aldur á hrauninu
heldur en rétt er. Það var þó ekki
fyrr en haustið 1971 að ég gat hugað
nánar að þessu en þá voru aðstæður
allar í rofinu mikla hjá Ytri Dalbæ
stórum betri en áður. Mátti nú sjá
samfellda jarðlagasyrpu frá hrauninu
og upp til þeirra jarðlaga, sent nú eru
að myndast (Sjá 6. mynd). í heild er
rofið röskir 10 m á hæð. Næst hraun-
inu er 30 cm þykkt lag af hörðum
mó, sem erfitt er að greina jurtaleifar
í. Næst þar fyrir ofan er 5 cnt þykkt
lag af jurtaleifum. Það er hart og
brotnar upp í þunnar flögur. Minnir
það helst á harðnaðan laufbotn í skóg-
lendi. Ofan á þessu og efst í því er
3 cm ljósleitt lag sem auðsjáanlega er
kísilgúr. Kísilþörungategundir í lag-
inu eru þær sömu og algengar eru
enn þá í tjörnum og mýrum urn
land allt. Langmest áberandi eru
Melosira tegundir og virðist því lík-
legast að þarna hafi fyrst verið tjörn
og síðar mýrarbolli líklega inni í
kjarrlendi. Aldursákvörðun sem Dr.
Ingrid U. Olsson, prófessor við Eðlis-
fræðistofnun Uppsalaháskóla gerði á
þessum jurtaleifum sýndi 4810 ± 80
C1J ár talið frá árinu 1950. Með hlið-
sjón af því og lwe þyhkur jarðvcgur
(því sem nœst 35 cm) var kominn of-
an á hraunið þegar þctta lag mynd-
aðist, virðist nú óluett að fullyrða, að
hraunið mikla úr Eldgjá sé runnið
varl síðar en fyrir um 5200 árum og
að svo gamall sé sá grunnur, sem
byggðin i Landbroti stendur á.
Þegar komið er 53 cm þykkt jarð-
vegslag ofan á hraunið taka skógar-
leifar að gera vart við sig og [sær eru
svo meira eða minna áberandi um
2,5 m upp en hætta þar snögglega,
og verður nánar urn það rætt síðar í
þessari grein. Réttum 96 crn ofan við
hraunið er ljóst, nærri hvítt (súrt)
öskulag 2,5 cm þykkt og nijög fín-
kornótt. Gegnurn það liggja birkilurk-
ar og hafa þeir nú verið aldursákvarð-
aðir og reynst 3800 ± 80 Cu ár (Jón
Jónsson 1975), talið frá 1950. Passar
þetta næsta vel við eldri ákvarðanir á
H-4 (Sig. Þórarinsson 1971). Telja má
219