Náttúrufræðingurinn - 1979, Blaðsíða 123
son 1977). Eldgjárhraunið er gjör-
ólíkt hraununum a£ Skaftársvæðinu,
jt. e. svæðinu austan Fögrufjalla og
milli [teirra og Galta, Varmárfells,
Blængs að austan. Raunar er það ger-
ólíkt og auðþekkt frá öllum hraunum
austan Skaftár, sem og hraununum
á Veiðivatna og Heklusvæðinu.
A£ þessum sökum tala ég hér eftir
um hraunin á Mýrdalssandi og í Álfta-
veri ásamt Landbrotshrauninu sem
Eldgjárhraun. Styð ég þetta við at-
huganir á fjölda sýna úr hraununum
á Mýrdalssandi, Álftaveri, Landbroti
og úr Eldgjá sjálfri. Skammt norðan
við Skálrn er grasigróið hraunsvæði,
sem nefnt er Ljósuvatnaháls en aust-
an undir honum voru Ljósuvötn eða
Ljósavötn, en þau mun Katla hafa
fyllt upp í síðasta hlaupi 1918. Þar
er lækur, Ljósuvatnalækur, og fellur
hann fram af hraunbrún rétt austan
við jijóðveginn og myndar snotran
foss, Vambafoss. Hraunið sent hann
fellur fram af sýnist vera hið sama og
í Alviðruhömrum, en annað en það,
sem lækurinn kemur undan nokkru
ofar. Hraunið er fínkornótt basalt-
hraun. Plagioklas kristallarnir eru
oftast aðeins 0,1—0,4 mm á lengd og
þaðan af minni. Einstaka plagioklas-
dílar koma þó fyrir í því á víð og
dreif, sumir 1 — 1,5 mm og jafnvel
stærri (9. mynd). Pyroxenkristallarn-
ir eru einnig af tveim stærðarflokkum.
í millimassanum eru jteir aðeins um
0,01—0,02 nnn í þvermál, en dílarnir
0,2—0.9 í þvermál. Ólivínkristallar
eru örsmáir, 0,05 mm eða ennþá
minni. Auk þess er allmikið af málm-
kornum í hrauninu. Virðist það vera
bæði seguljárn (magnetit) og ilmenit.
Einkennandi fyrir pyroxendílana er
9. mynd. Smásjármynd af Eldgjárhrauni.
Plagioklasdíll í millimassa af plagioklasi,
pyroxen, ólivín og málmi. lOOx stækkun.
Sýni frá Alviðruhömrum í Álftaveri. —
Microþhoto of the Eldgjd lava in Alviðru-
hamrar, Alftaver district. Magn. ca. lOOx.
svonefnt stundaglasasvipmót (strúkt-
úr), en það er einkennandi fyrir títan-
ágít. Mætti telja þetta eitt af aðal-
einkennum ]>essa hrauns.
Dágóða mynd af samsetningu
liraunsins fær maður með því að
telja í því allar steintegundir svo
hægt sé að sjá hlutföllin milli þeirra.
Ég hef athugað mikinn fjölda sýna
úr hrauninu í Landbroti og verða
aðeins nokkur talin hér, en þau ættu
að mínu áliti að gefa sæmilega mynd
af samsetningu hraunsins. Sjá töflu
VI.
217