Náttúrufræðingurinn - 1979, Blaðsíða 73
ur að teljast sennilegt að varpstöðvar
hennar séu einhvers staðar inni á
skáganum.
Grænland hefur löngum verið tal-
ið til varpheimkynna húsandar, en
heimildir um varp þar eru þó enn
rýrari en á Labrador. Salomonsen
(1950) segir að útbreiðsla húsandar
á Grænlandi sé mikil ráðgáta. Alls
voru um 50 skráðar heimildir um
ltúsönd á Grænlandi þegar Salomon-
sen birti rit sitt um þarlenda fugla.
Flestra húsanda liefur orðið vart í
Godthábsfirði og Ameralikfirði á
Vestur-Grænlandi, en fáeinar sjást
allt suður til Frederiksháb. Kringum
Julianeháb á Suðvestur-Grænlandi er
húsöndin sjaldgæfur flækingur, og á
austurströndinni er aðeins vitað urn
eina húsönd sem veiddist við Ang-
magsalik sumarið 1913. Húsöndin hel-
ur sést á öllum tímum árs á Græn-
landi, en mest á veturna, frá nóvember
fram í aprílbyrjun. Holböll segist
hafa fengið stóran húsandarunga frá
Grænlendingum, og átti unginn að
liafa náðst fyrri hlutann í ágúst innst
inni í Godthábsfirði. Húsöndin var
sögð verpa á eyju í straumharðri á
(„vandfald") inni af Ilulialikfirði.
Síðan hafa menn nokkuð leitað að
liúsöndum á þessum slóðum, en án
árangurs. Umrætt eintak er nú glat-
að og er því óvíst hvort Holböll hefur
aldursákvarðað það rétt. Salomonsen
getur þess sérstaklega að grænlending-
ar taki það yfirleitt fram, þegar þeir
komi með skotnar húsendur til fugla-
fræðinga, að fuglinn sé þeim með
öllu ókunnur. Telur hann jafnvel
koma til mála að húsöndin sé ekki
reglulegur varpfugl á Grænlandi, og
stingur upp á því að lnin kunni að
vera gestur frá Ameríku. Þrátt fyrir
þessa örðugleika segir Salomonsen að
lokum að húsöndin virðist vera strjáll
varpfugl á Vestur-Grænlandi, liún sé
sennilega staðfugl og haldi sig á vet-
urna við ströndina úti fyrir varpsvæð-
unum. Frá því Salomonsen reit bók
sína hafa ekki komið fram neinar
nýjar upplýsingár sem benda til þess
að húsönd sé reglulegur varpfugl á
Grænlandi. Virðist mér því að hún
sé fyrst og fremst óalgengur vetrar-
gestur eða umferðarfugl, Jtótt ekki
virðist útilokað að um óreglulegt varp
geti verið að ræða.
Samkvæmt því sem nú hefur verið
rakið, er ljóst að húsöndin (1) er regln-
legur vetrargestur við austurströnd
Kanada og norðausturríkja Banda-
ríkjanna, (2) fellir örugglega í allmikl-
um mæli nyrst á Labrador og (3) kem-
ur fyrir á Grænlandi, einkum á vetr-
um. Uppruni þessara fugla er óljós.
Ólíklegt virðist að jteir geti verið frá
vestanverðri Ameríku nema að litlu
leyti. Ósannað er að húsendur verpi
yfirleitt á Labrador, en þar gætu
liugsanlega verið varpstöðvar sem enn
hafa ekki fundist. Einnig er ósannað
að þessar endur geti verið frá Islandi,
en grænlensku athuganirnar benda
til j)ess að þann möguleika beri ekki
að útiloka.
Utbreiðsla d íslandi
Hér á eftir eru birtar allar tiltækar
heimildir um útbreiðslu húsandar á
íslandi, en kaflinn er að verulegu
leyti byggður á nýlegum upplýsing-
um sem komið hafa fram við kannan-
ir um allt land, bæði af landi og úr
lofti.
í stuttu máli er útbreiðsla húsand-
167