Náttúrufræðingurinn - 1979, Blaðsíða 117
Bunuhóláhraun.
Bunuhólar eru eins og áður segir,
gígaröð, sem liggur um dalinn þver-
an um 2,5 km suðvestur a£ Rauðhól.
Holtsá sker sig í gegnum nyrsta gíg-
inn og tekur þar í sig drjúga viðbót
vatns, sem þar sprettur upp úr gos-
sprungunni og líklega er það, sent
gefið hefur hólunum nafn. Vestan
megin er gjall- og rauðamalarlög um
10—15 m þykk, sem hallar til norð-
vesturs út frá uppvarpinu og þynnast
fljótt en í farvegi árinnar er hraun
og eins austan hennar. Greina má
tvo aðra gígi suðvestur af þessum og
stefnir gígaröðin í heild, og þar með
talinn Rauðhóll, frá norðaustri til
suðvesturs. Hraun frá þessari gosstöð
hefur fallið niður nteð Holtsá, sem
rennur í þröngu gili austan undir
Skálarheiði, svo þröngu að nálgast
gljúfur. Má rekja liraunið niður eft-
ir gilinu og sér seinast í það innst í
Holtsdal framan við Sótatungur. Þar
hverfur það undir framburð árinnar.
Uppi við gígina er hraunið þunnt,
víðast aðeins 1—1,5 m, enda er það
þar í miklum halla og hefur runnið
mjög hratt. Fremst í gilinu eru 5—6
m háir stabbar úr því. Má því vel
vera að talsvert hraun hafi þarna kom-
ið upp. 1 Skaftáreldum stíflaðist
Holtsá og dalurinn fylltist vatni og
var það nefnt Holtslón. Skaftá og
Holtsá hafa síðan verið að fylla það.
Leifar þess voru enn sýnilegar um
1925 en nú eru þar aðeins eyrar, vatns-
glætur og kvíslar úr Holtsá. Jón Stein-
grímsson (1973) nefnir í riti sínu um
Skaftárelda að fyrir framan Holtsdal:
„stóðu upp úr hér og þar gamlir
brunahraunshólar". Hvort þeir hafa
verið úr þessu hrauni eða Landbrots-
hrauninu (Eldgjárhrauni) er ekki vit-
að. Hraunið er það sem nefnt er
þóleít með nokkru af plagioklasdíl-
um, sem eru um 1 mm á lengd, en
eru oft í hópum með pyroxen og stöku
sinnum líka ólivín kristöllum. Mynd-
ast þannig samsettir dílar (porphyro-
blast), sem orðið geta allt að 2—3 mm
í þvermál. Einstaka pyroxen dílar ná
því að verða 2 mrn en ólívin yfirleitt
ekki nerna 0,5 mm og oftast eru óli-
vínkristallarnir inni á milli plagio-
klasdílanna alveg eins og er í Rauð-
hólahrauni. Samsetningu hraunsins
má ráða af Töflu IV.
Tafla IV. Samsetning Bunuhólahrauns
I II III IV Meðaltal
Plagioklas 46,7% 54,5% 55,2% 43,5% 49,9
Pyroxen 44,4% 39,2% 39,6% 47,7% 42,7
Ólivín 2-4% 1.5% 1,8% 3,3% 2,3
Málmur 6.4% 4,8% 3,3% 5,3% 4,9
Dílar : Plagioklas 1.8% 9,3% 10,9% 3,3% 6,3
Pyroxen 0,9% 0,5% 1,3% 1,7% 1,2
Ólivín 0,9% 0,5% 1,3% 1,5% 1,0
Tala punkta 1001 1020 1058 1089 Samt. 4168
211