Náttúrufræðingurinn - 1989, Síða 8
20-
-10 -
.20 J--------------------------------------------
I RIIIIIIIIIIHMIIIIHII I IIIIWMIIIIIIinillllllllMI II II III I II III I lllllllllliail
|'a'm'j'j'a's'o'n'dIj'f'm'a’m'I
1980 1981
2. mynd. Lofthiti í Reykjavík (hámark og
lágmark hvers dags) á athugunartíman-
um, mars 1980 til maí 1981. Air tempera-
ture (daily maxima and minima) in
Reykjavík during the study period, March
1980 - May 1981.
haustið 1980 og vorið 1981 voru um
meðallag. Kaldast var 15. janúar 1981,
-15,7°C, en hlýjast 30. júlí 1980,
23,7°C (2. mynd). í fjóra mánuði, þ.e.
desember-mars 1980-1981, var meðal-
hitinn undir 0°C (Veðráttan 1980,
1981).
Athuganir hófust 16. mars 1980 og
lauk 22. maí 1981. Samtals var talið
107 sinnum í Grafarvogi og 108 sinn-
um í Kópavogi. Aðeins var talið um
fjöru og tók hver talning 1-3 klst.
Ahersla var lögð á að telja sem oftast
um fartímann, þ.e. í apríl, maí, júlí og
ágúst. Að auki höfum við haft til hlið-
sjónar talningar frá apríl og maí 1979
og 1982. f Grafarvogi var ýmist talið
frá brekkubrún sunnan við voginn,
móts við þar sem nú er Gullinbrú, eða
af bakkanum fyrir botni vogsins. í
Kópavogi var oftast talið frá strönd-
inni sunnan við ós Kópavogslækjar,
en einnig frá ströndinni norðan vogs-
ins (við Sunnubraut). Við talningar
var notuð fjarsjá (teleskóp), með 22x
stækkun, og sjónauki (8-10x stækkun).
Allir fuglar voru ákvarðaðir til teg-
undar. Síðsumars voru metin aldurs-
hlutföll hjá heiðlóu og lóuþræl, auk
þess sem við skráðum hvenær fyrst
varð vart við fleyga unga annarra teg-
unda.
Fæða var athuguð í mögum 16 vað-
fugla sem veiddir voru um fjöru í
Grafarvogi, en það voru 6 heiðlóur, 5
lóuþrælar, 4 rauðbrystingar og 1
sendlingur. Auk þess skoðuðum við
maga úr 11 rauðbrystingum úr Flval-
eyrarlóni í Hafnarfirði. Fuglarnir voru
krufðir og fæða athuguð í tvennu lagi,
framan fóarns, þ.e. úr vélinda ásamt
kirtlamaga, og úr fóarni. Framan
fóarns voru öll fæðueintök talin, en
ekki var hægt að telja úr fóarni þar
sem eintök voru mjög brotin eða
melt. Hlutfallslegt magn fæðutegunda
í fóarni var metið út frá þekju, en hún
svarar nokkurn veginn til rúmmáls.
Algengasta fæðutegundin í hverjum
maga var skráð sem aðalfæða.
TEGUNDASKRÁ
Alls sáust 52 tegundir fugla á taln-
ingasvæðunum. Mest var af andfugl-
um, vaðfuglum og máfum. Hér verður
einungis rætt um vaðfuglategundir, en
þær voru 14 talsins. Verður fjallað ít-
arlega um algengari tegundirnar, 9
alls, en stuttlega um þær sjaldgæfari.
Tjaldur (Haernatopus ostralegus)
sást alla mánuði ársins. Vorið 1980 var
fjöldi tjalds í Kópavogi mestur 31.
mars (236) og í Grafarvogi 5. apríl
(224) (3. mynd). Hámarkið 1981 var 9.
62