Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1989, Qupperneq 18

Náttúrufræðingurinn - 1989, Qupperneq 18
Rauðbrystingur (Calidris canutus). Ljósm. Jóhann Óli Hilmarsson. Bæði árin fjölgaði rauðbrystingi í Kópavogi hægt fyrstu tvær vikurnar, en um mánaðamótin apríl-maí varð geysileg aukning á fáeinum dögum, t.d. voru rauðbrystingarnir 170 26. apríl 1980 en 2310 í hámarkinu 4. maí (9. mynd). Vorið 1981 voru 107 rauð- brystingar í Kópavogi 29. apríl en 3100 í hámarkinu 7. maí. Bæði vorin var annar en minni toppur seinna í maí, 13. maí 1980 (940) og 19. maí 1981 (850). Síðustu rauðbrystingarnir vorið 1980 sáust 28. maí á báðum svæðum, 111 í Grafarvogi og 48 í Kópavogi. Tveir aðaltoppar í fjölda rauðbryst- ings á vorin virðast vera árvissir við- burðir í Kópavogi, 1979 voru toppar 11. (2500) og 26. maí (520), 1982 9. (3100) og 21. maí (630). Athyglisvert er að allir topparnir voru á stór- straumsfjöru. Athuganir vorið 1980 bentu til þess að hér hafi líklega verið um tvær bylgjur komufugla að ræða, frekar en rauðbrystingarnir fari af leirunum og dreifist um aðrar fjörur á smástreymi. Eftir vorhámark í Kópa- vogi 1980 fækkaði rauðbrystingum í 114 8. maí, í næstu talningu þann 11. maí hafði fjölgað í 380 fugla og 13. maí í 940. Talið var í Skarðsfirði dag- ana 5.-11. maí 1980 (Agnar Ingólfsson o.fl. 1980). Engir rauðbrystingar sáust þar fyrr en 9. maí, þá samtals 200, 10. maí voru þeir 400 og 11. maí 800. Fuglarnir sem sáust 9. og 10. maí komu af hafi og hurfu vestur með ströndinni, en höfðu ekki viðdvöl í Skarðsfirði. Við teljum að þessar bylgjur, sem ganga yfir Suðurland í maí, haldi áfram norður með vestur- ströndinni og rauðbrystingar safnist einkum saman við norðanverðan Faxaflóa og Breiðafjörð. Áður en rauðbrystingar hverfa frá íslandi á vorin, síðustu vikuna í maí og fyrstu dagana í júní, eru þeir flestir komnir 72

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.