Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 37

Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 37
’iBiSRíCaiíBW*) ,* 2mu. MVt. •4«, ífílíW ^feÉtv *ÍM**ÍÍ!B*) WK*(ím«) 14. mynd. Sýningartafla í hlíðum Sakura-jima. Myndin sýnir ljósmynd af fjallinu og hin- ar og þessar útskýringar á varnarkerfi og farvegum eðjuhlaupanna. Efsti gróðurlausi hlutinn er aðalsöfnunarsvæði hinnar fínkorna gjósku sem til verður í sprengingum í gígn- um sem gufurnar stíga upp af. Display board on the slopes of Sakura-jima showing the fuming crater, the unvegetated area where tephta accumulates, and the mudflow channels on the lower slopes. Ljósm. photo Páll Imsland. Þar er því frekar erfitt að stjórna rof- inu, enda eru mestu rofstjórnarmann- virkin neðarlega, á hinum flatari lág- hlíðum fjallsins. Þar taka eðjustraum- arnir einnig upp mikið af grófkorna efni, allt upp í stærðar hnullunga. Sá hluti hlaupanna er lang skaðlegastur. Stíflurnar eru byggðar í giljum og dal- verpum þar sem á bak við þær mynd- ast uppistaða. Þær eru venjulega steyptar en einstöku þeirra eru hlaðn- ar. Þær þjóna því hlutverki að hægja á eðjustraumnum og tefja för hans. Þá fellur meira af fasta efninu til botns og verður eftir í gildrunum á bak við stíflurnar. Steyptu gólfin þjóna þeim tilgangi að hindra það að flaumurinn skeri sig niður í jarðlögin og rjúfi laus efni og safni þannig í sig sífellt meira efni á leið sinni. Sum þeirra eru í smá- um grónum skorningum langt upp eft- ir hlíðunum. Gólfin eru þá rennulaga og stýra rennslinu niður í aðalfarveg- ina, til stíflanna og hindra um leið að flaumurinn skeri sig niður. Stýrigarð- arnir eru einnig bæði hlaðnir og steyptir og þjóna þeim tilgangi að stjórna því hvar flaumurinn fer. Með görðum þessum er hann leiddur í átt til uppistaða og stífla og inn í lokafar- 203

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.