Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1989, Blaðsíða 51

Náttúrufræðingurinn - 1989, Blaðsíða 51
næst var ekið fram með Gerðubergi, miklu og fögru stuðlabergsþili á leið að Rauðamelsölkeldu, mestu og þekktustu ölkeldu landsins. Að henni var gengið og hafði fólk með sér drykkjarílát. Áfram var haldið út eftir Ölduhrygg og stansað við Hofgarðatjörn sem er einna gróskumest allra tjarna á Snæfellsnesi. í henni vex m.a. tjarnablaðka, en hún finnst nú aðeins á þessum eina stað á landinu. Einnig var hugað að öðru lífi í tjörninni. Að Búðum var slegið upp tjöldum og efnt til grasa- greiningar- og veðurspárkeppni um kvöld- ið. Daginn eftir var gengið um Búðahraun og litið til blóma og grasa. Hluti hópsins gekk á Búðaklett. Eftir hádegi var ekið í kringum Snæfellsjökul með viðkomu í Breiðuvík, á Arnarstapa, við Þúfubjarg og Lóndranga, Saxhóla og Ólafsvíkurenni. Á þessari leið var jöfnum höndum skoðuð eldvirk uppbygging landsins svo og hlutur dýra og jurta í einhverri fegurstu náttúru þessa lands. Á þriðja og síðasta degi var ekið yfir Fróðárheiði og í Búlandshöfða og fræðst um jarðlög frá ísöld. í Berserkjahrauni var gerður stuttur stans en þaðan haldið aust- ur eftir Snæfellsnesi og suður í gegnum fjallgarðinn um Heydal. Til Reykjavíkur var komið um kvöldmatarleytið eftir að hafa ferðast um Vesturland og Snæfellsnes í þrjá daga í sérstakri náð allra veður- engla. Fyrir ferðina var ýmsum fróðleik um Snæfellsnes safnað saman í 14 blaðsíðna fjölrit, sem þátttakendur fengu afhent við upphaf ferðarinnar. Höfundar þess voru Þorleifur Einarsson (jarðfræði), Sigurður Steinþórsson (hraunalýsing kringum Snæ- fellsjökul), Sigurður Magnússon (gróður á Snæfellsnesi) og Árni Einarsson (fuglalíf). Þann 17. júlí var ferð á Biskupstungna- afrétt undir leiðsöpn Ólafs Arnalds jarð- vegsfræðings og Asu Aradóttur líffræð- ings. Röktu þau uppblásturssögu svæðisins og sýndu gróður- og jarðvegsleifar á af- réttinum sem sýna hvernig þar var um- horfs áður fyrr. Þátttakendur voru 32. Síðan var haldið í ferð í Þjórsárver dag- ana 21. - 24. júlí. Fjöldi þátttakenda var takmarkaður við 35 manns en sökum slæmrar veðurspár heltust margir úr lest- inni þannig að alls urðu ferðalangar 20. Leiðsögumenn voru Gísli Már Gíslason og Þóra Ellen Þórhallsdóttir. Ekið var upp að ármótum Hreysiskvíslar og Þjórsár og þar settir á flot tveir gúmmíbátar. Fólk var síðan ferjað yfir og gekk það vel. Þann dag var gengið að Arnarfelli og slegið upp tjöldum. Til stóð að ganga á fjallið um kvöldið en úðarigning var sem freistaði manna lítt til fjallgöngu. Daginn eftir skein sól og var hið ágætasta veður. Flestir héldu í Arnarfellsver og yfir Arnarfells- kvísl í Arnarfellsmúla þar sem gróskumik- ið blómskrúð var skoðað og síðan niður í Múlaver til að líta á rústir. Um kvöldið var gengið á Arnarfell í góðu skyggni. Daginn eftir var haldið til baka en rétt áð- ur en komið var að Þjórsá tók að hvessa verulega af norðaustri. Sóttist ferðin yfir ána seint en með samstilltri aðstoð allra þátttakenda gekk þó allt vel og eftir rúma tvo tíma stóðu allir á bakkanum hinum megin og helltu úr stígvélum sínum. Þar sem ekki komust allir í bátsferðina um KoIIafjörð í maí var ákveðið að endur- taka hana 14. ágúst en hún féll því miður niður. Fuglaskoðunarferðir eru árvissar hjá fé- laginu. Að þessu sinni var hún að haust- lagi, 25. september, en þá má oft sjá flæk- ingsfugla. F’arið var um Reykjanesskaga en því miður viðraði illa til útiveru. Þátt- takendur voru 14, en leiðsögumaður var Erling Ólafsson. í september bauð félagið líka upp á ferð °g tveggja kvölda námskeiðs í náttúruljós- myndun. Leiðbeinandi var Skúli Þór Magnússon líffræðingur og ljósmyndari. Fyrra kvöldið, 22. september, sýndi Skúli eigin myndir og ræddi um undirstöðuatriði náttúruljósmyndunar. Síðan var ferð á Þingvelli 25. september þar sem þátttak- endur spreyttu sig á haustlitunum. Seinna kvöldið, 6. október, var svo afrakstur Þingvallaferðarinnar skoðaður og dæmd- ur. Þátttakendur voru 14 á námskeiðinu en 12 fóru í ferðina. Leiðsögumönnum er þakkað þeirra framlag og Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar er þökkuð lipurð og ágæt þjónusta. 217
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.