Náttúrufræðingurinn - 1989, Side 37
’iBiSRíCaiíBW*)
,* 2mu.
MVt.
•4«, ífílíW ^feÉtv
*ÍM**ÍÍ!B*)
WK*(ím«)
14. mynd. Sýningartafla í hlíðum Sakura-jima. Myndin sýnir ljósmynd af fjallinu og hin-
ar og þessar útskýringar á varnarkerfi og farvegum eðjuhlaupanna. Efsti gróðurlausi
hlutinn er aðalsöfnunarsvæði hinnar fínkorna gjósku sem til verður í sprengingum í gígn-
um sem gufurnar stíga upp af. Display board on the slopes of Sakura-jima showing the
fuming crater, the unvegetated area where tephta accumulates, and the mudflow channels
on the lower slopes. Ljósm. photo Páll Imsland.
Þar er því frekar erfitt að stjórna rof-
inu, enda eru mestu rofstjórnarmann-
virkin neðarlega, á hinum flatari lág-
hlíðum fjallsins. Þar taka eðjustraum-
arnir einnig upp mikið af grófkorna
efni, allt upp í stærðar hnullunga. Sá
hluti hlaupanna er lang skaðlegastur.
Stíflurnar eru byggðar í giljum og dal-
verpum þar sem á bak við þær mynd-
ast uppistaða. Þær eru venjulega
steyptar en einstöku þeirra eru hlaðn-
ar. Þær þjóna því hlutverki að hægja á
eðjustraumnum og tefja för hans. Þá
fellur meira af fasta efninu til botns og
verður eftir í gildrunum á bak við
stíflurnar. Steyptu gólfin þjóna þeim
tilgangi að hindra það að flaumurinn
skeri sig niður í jarðlögin og rjúfi laus
efni og safni þannig í sig sífellt meira
efni á leið sinni. Sum þeirra eru í smá-
um grónum skorningum langt upp eft-
ir hlíðunum. Gólfin eru þá rennulaga
og stýra rennslinu niður í aðalfarveg-
ina, til stíflanna og hindra um leið að
flaumurinn skeri sig niður. Stýrigarð-
arnir eru einnig bæði hlaðnir og
steyptir og þjóna þeim tilgangi að
stjórna því hvar flaumurinn fer. Með
görðum þessum er hann leiddur í átt
til uppistaða og stífla og inn í lokafar-
203