Náttúrufræðingurinn - 1989, Blaðsíða 52
ÚTGÁFUSTARFSEMI
Útgáfa Náttúrufræðingsins hefur dregist
lítillega aftur úr en fljótlega mun koma út
4. hefti 58. árgangs. Stjórnin hefur ákveð-
ið að taka upp litprentun á Náttúrufræð-
ingnum frá og með 59. árgangi.
Félagið gaf í sumar út bækling um
Skaftafell og Öræfi, en hann er unninn
upp úr bæklingnum sem gerður var fyrir
löngu ferðina í Skaftafell sumarið 1987.
Kverið er rúmlega 20 blaðsíður að stærð í
litlu og handhægu broti. Pað kostaði 250
kr. og var dreift til verslana á Kirkjubæjar-
klaustri og Fagurhólmsmýri og var einnig
til sölu bæði hjá Náttúruverndarráði og
Kaupfélaginu í Skaftafelli og í einni versl-
un í Reykjavík. Salan var því miður dræm
og telur stjórnin ekki vera grundvöll fyrir
frekari útgáfu slíkra bæklinga.
Sala á fugla- og flóruspjöldum félagsins
gekk ágætlega. Seldust um 500 eintök á
árinu sem er svipuð sala og í fyrra.
ÁSKRIFENDAHERFERÐ
Stjórn félagsins ákvað að gangast fyrir
áskrifendaherferð sl. vor með því að
dreifa 2. hefti 58. árgangs með gíróseðli.
Stjórn félagsins og meðlimir ritnefndar
skiptu með sér verkum og safnaði hver
upplýsingum um einn markhóp. Til dæmis
var öllum alþingismönnum sent bréf, einn-
ig öllum skólabókasöfnum, öllum fulltrú-
um í náttúruverndarnefndum sýslna og
kaupstaða, öllum félögum í jarðfræðifélag-
inu, F.Í.N. og líffræðifélaginu sem ekki
voru félagar fyrir og mörgum fleirum. Alls
voru sendir út um 950 gíróseðlar og skilaði
þessi herferð inn um 150 nýjum félögum.
Langmest virðist hafa skilað sér af höfuð-
borgarsvæðinu. Félagar úti á landi eiga
ekki sömu möguleika á að taka þátt í starfi
félagsins, t.d. að hlýða á fyrirlestra eða
fara í dagsferðir. Stjórnin vildi gjarnan
efla fræðslustarf úti á landi en undirtektir
hingað til hafa ekki verið góðar.
218