Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1994, Blaðsíða 26

Náttúrufræðingurinn - 1994, Blaðsíða 26
og svaneðlur í sjó, og flugeðlur sveimuðu um loftið. Alfred Sherwood Romer (1894- 1973), virtur bandarískur fomdýrafræðing- ur, skipti skriðdýrunum í sautján ættbálka. Þar af em fjórir nú uppi, þeir sem að fram- an hafa verið nefndir. Hinir þrettán em al- dauða og vom allir nema einn horfnir þegar miðlífsöld lauk. ■ UPPRUNAFLOKKUNIN SUNDRAR SKRIÐDÝRUNUM En hvort sem litið er á núlifandi tegundir eða allan hópinn er ljóst að skriðdýrin eru allt of sundurleit að uppmna og þróun til þess að þau geti talist samstæð heild í upp- mnaflokkun. Undir mælistiku slíkra fræða bíða skriðdýra, flokksins Reptilia, sömu örlög og orma Linnés, fylkingarinnar Vermes. Krókódílar em til dæmis mun skyldari fuglum en öðmm núlifandi skrið- dýmm. Skriðdýr, fuglar og spendýr, svo enn séu notuð hugtök hefðbundinnar flokkunar- fræði, þroskast af fóstri sem umlukið er líknarbelg, jafnframt því sem fleiri himnur tengjast fóstrinu. Þessi hryggdýr eru þess vegna flokkuð saman sem líknarbelgsdýr, Amniota. Fóstur físka og froskdýra3 em aftur á móti líknarbelgslaus, Anamnia. Líknarbelgsdýrum er svo stundum skipt eftir gerð höfúðkúpunnar í þrjár megin- dcildir: heilkúpunga, Anapsida, með heila hauskúpu; tvíboga, Diapsida, með tvö göt 3 Fiskar Linnés, Pisces, greinast nú í nokkra flokka og verður ekki farið nánar út í þá sálma hér. Mönnum ber ckki saman um hvort froskdýrin séu öll af einum uppruna (einstofna) eða hvort fiskar hafi tvisvar í jarðsögunni numió land og þess vegna beri að skipta froskdýrum í tvo flokka samkvæmt upprunaflokkun. 4 Áður tilgreindu menn fjórðu deildina, Parapsida, með eitt gat á gagnaugasvæði sem svarar til efra gatsins á tvíbogum þar sem gatið á hauskúpu einboga samsvarar því neðra. Þessi dýr sem uppi voru á miðlífsöld - hvaleðlur (Ichthyopterygia) og svaneðlur og skyld dýr (Synaptosauria) - eru nú talin innbyrðis lítt skyld og flokkuð með tvíbogum. Raunar afmarka bogamir stundum dældir fremur en göt á haus- kúpunni, til dæmis á spendýrum (fossa temporalis). hvorum megin á gagnaugasvæði aftan við augntóftina afmörkuð af beinbogum; og einboga, Synapsida, með aðeins eitt gat og einn boga á gagnaugasvæði.4 Talið er að bogarnir hafí þróast sem festing fyrir kjálkavöðvana. Margir flokkunarfræðingar telja þessa skiptingu endurspegla raun- verulega aðgreiningu líknarbelgsdýra eftir uppruna. Þá gæti hún komið í stað hefð- bundinnar skiptingar í skriðdýr, fúgla og spendýr. Allir fuglar eru tvíbogar og öll spendýr eru einbogar. Enn birtast skriðdýrin sem sundurleitt safn: Skjaldbökur, einar núlif- andi dýra, eru heilkúpungar; öll önnur nú- lifandi skriðdýr ásamt þorra hinna útdauðu eru tvíbogar; og loks teljast nokkrir ætt- bálkar aldauða skriðdýra til einboga, þar með þeir sem taldir eru standa næst for- feðrum spendýra. Flokkar núlifandi líknar- belgsdýra mættu samkvæmt því vera (1) heilkúpungar eða skjaldbökur, (2) tvíbogar - ranakollar, hreistrungar, krókódílar og fúglar - og (3) einbogar eða spendýr. ■ „stóreðlur“ núti'mans Þá víkur sögu að stóreðlum eða risaeðlum miðlífsaldar, dínósárunum. Mörg þessi dýr voru feiknastór, stærstu landdýr sem menn þekkja, allt að 30 metra löng og 50 lestir eða þyngri. Dýrafræðingar telja að þau hafí upprunalega gengið á tveimur fótum. Að- eins stærstu og þyngstu stóreðlur gengu á ljórum fótum og þær höfðu - eins og hinar minni - styttri framlimi en afturlimi, sem bendir til að þær hafí verið komnar af tvífættum dýrum. Stóreðlur skiptast í tvo ættbálka, meðal annars eftir gerð mjaðmabeinanna: Eðlu- mjaðmar, Saurischia, höfðu mjaðmagrind sem líkist mjaðmabeinum nútíma eðla, en fuglsmjaðmar, Omitischia, minntu meir á fugla að þessu leyti. Lengi var talið að þessir ættbálkar væru lítt skyldir og stór- eðlurnar því tvístofna. Nú telja fræðimenn að allar stóreðlur hafí verið af einum stofni (10. mynd). Til þessa stofns telja uppruna- flokkunarfræðingar auk þess einn hóp nú- lifandi dýra, fuglana. Og til að kóróna 104
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.