Náttúrufræðingurinn - 1994, Blaðsíða 57
3. mynd. Ummerkin eftir sjöunda brotið eins og þau birtust Hubble-sjónaukanum 1 klst og
45 mín síðar. Greinilega má sjá gárur er líkjast yfirborðsbylgjum á vökva breiðast út frá
staðnum. Dökka svœðið í miðjunni er sjálfur árekstrarstaðurinn, en litli dökki bletturinn
Jyrir ofan þann stóra er ummerki eftirjjórða kjarnabrotið sem féll tæpum sólarhring fyrr.
Mynd Geimferðastofnun Bandaríkjanna (Jet Propulsion Laboratoiy).
brotin hafa mun meiri orku, en þau stærstu
voru talin vera allt að 4-5 kílómetrar í
þvermál.
Öflugir árekstrar
Þegar stundin nálgaðist þann 16. magn-
aðist spennan. Fyrstu myndir sem bárust af
atburðinum sýndu líka mun öflugri árekst-
ur en bjartsýnustu menn höfðu getað
ímyndað sér (2. mynd). Gífurleg sprenging
varð við yfírborð Júpíters, svo öflug að
þrátt fyrir að hún yrði inni á bakhlið
reikistjörnunnar, náði strókurinn frá henni
upp íyrir brún Júpíters og var því vel
sýnilegur frá jörðinni. Alls er talið að
mökkurinn hafí teygt sig um 2000 km út í
geiminn.
Þann 18. júlí kl. 7:30 small svo fyrsta
stóra brotið en það var hið sjöunda í
röðinni. Orkan í þeim árekstri var gífurleg
og samsvaraði nokkrum milljónum mega-
tonna af sprengiefninu TNT. Til saman-
burðar má geta þess að þetta er meiri
sprengikraftur en í öllu kjarnorku-
vopnabúri mannkynsins samanlögðu.
Arekstrarstaður þessa brots sést á 3. mynd.
Næstu daga á eftir féll svo hvert brotið af
öðru uns það síðasta lenti á Júpíter um kl. 8
að morgni 22. júlí. Jafnan er nokkurt magn
af ryki í slóð halastjama og reiknuðu menn
með að sjá mætti ummerki árekstra þessa
ryks og annarra minniháttar leifa hala-
stjömunnar við Júpíter allt frarn í septem-
ber.
FRAMTÍÐIN
HeITIR DÖKKIR BLETTIR
Nú þegar allt er um garð gengið og nærri
tveir mánuðir um liðnir má enn sjá
ummerki árekstranna sem dökka bletti á
yfirborði reikistjörnunnar. Svo stórir em
þeir að þvermáli að þeir em vel sýnilegir í
litlum stjörnusjónaukum frá jörðinni. Þeir
sem séð hafa yfírborð Júpíters, annaðhvort
á myndum eða i sjónaukum, kannast við
stóra rauða blettinn, en hann hefur verið
135