Náttúrufræðingurinn - 1994, Blaðsíða 44
6. mynd. Úr Austurgjánni. A miðri mynd, hraunfoss frá 1783 fellur yfir tvo gígrima frá
Jyrsta gosi rétt þar sem þeir mætast. - In the crater row east of Laki. A lava cascade from
the 1783 eruption over the rampart of two craters from the first eruption. Mynd /photo Jón
Jónsson.
sjá flnustu æðar. Ljósmynd tekin gegnum
smásjána sýnir líkamsleifar flugu þessarar
sem fórst voveiflega í eldgosi fyrir þúsund-
um ára þegar hún í sakleysi sýnu hélt sig
svífandi yfír vatninu (7. mynd). Allt útlit
og annað það er varðar þennan gíg gefur
tilefni til þeirrar niðurstöðu að hann sé frá
sama gosi og sé sama eðlis og „Stóri-
Svartur“ og frá fyrsta gosi (gosi 1) í Eld-
borgaröðum. Gegnum suðvesturöxl stóra
gígsins liefur eldsprungan frá 1783 brotist,
byggt þar upp háan og aflangan hraungíg
úr grófu gjalli og kleprum, en hraun frá
honum liefur myndað tjöm inni í gamla
gígnum. Við lok gossins hefur yfirborð
hennar lækkað um nokkra metra, en af-
rennsli hefur hún haft, sameiginlegt með
miklu og afar flóknu gíghólahrúgaldi,
undir yfirborði til norðvesturs við norður-
enda nyrðri gígrimans og eftir stómm
hrauntröðum meðfram honum út í hraunin.
A svæðinu suðaustur af þessu eru þær
sérkennilegu myndanir sem Sapper var
fyrstur til að lýsa (bls. 18) og nefndi
Lavapilze (hraunsveppi), en ég hef leyft
mér að nefna sappa til heiðurs honum. Ég
hef á öðrum stað nokkuð fjallað um þær
myndanir og læt þvi hér staðar numið hvað
þá varðar (Jón Jónsson og Dagur Jónsson
1993).
Réttum kílómetra norðar, og sunnan
undir hraungígnum frá síðasta gosi, koma
7. mynd. Fluga sem fannst innpökkuð í
öskubaun. - A subfossil fly, found within a
pisolith. Mynd/photo Jón Jónsson.
122