Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1994, Page 40

Náttúrufræðingurinn - 1994, Page 40
4. mynd. Dœmigerðir hraungígir vestan við Laka. Þar hefur gosið aðeins einu sinni, 1783. — Typical lava craters at the west side of Laki. Only one eruption has occurred there, that of 1783. Mynd/photo Jón Jónsson. gímald, gæti verið allt að 60 m djúpur, og mikið hraunflóð hefur frá honum runnið eftir hrauntröðum til suðurs. Rétt við út- fallið úr honum var lítil tjöm, vart nema 3 m2 og 1,5—2 m djúp. Liklega er um falskt grunnvatn að ræða. Hraungigaröðin liggur efltir sigdalnum gegnum næsta stóra gig. Em þar ein fímm gosop og hraun hefur mnnið til beggja hliða. Athyglisvert er að hraun frá síðasta gosi hefúr runnið upp að og sem næst í hálfhring utan um þennan - og upp að þeim næsta austan við. Vart hefði það orðið væru gjallgígir og hraun- gígir frá sama gosi. Spölkom norðan við vestri gíginn er dálítið helluhraunssvæði. Ekki verður betur séð en að það hafí komið þar upp. Um gíg í venjulegum skilningi er þar ekki að ræða, en út frá hringlaga svæði liggja hraunpipur sem sýna að þar hefur hrauntjöm verið. Hraunið sem virðist ör- þunnt hefúr náð að renna langleiðina norð- ur að Lambavatni, vestur að Stóra-Svarti og suður um skarðið milli gíganna sunnan við. Ekki vil ég útiloka þann möguleika að þama hafí hraun getað runnið til norðurs, út frá aðalgígaröðinni, í ákafri virkni á fyrsta stigi gossins, og myndað þar hraun- tjöm sem svo rann frá. Hæðarmæling með einföldum tækjum benti þó fremur til hins fyrra. Um Stóra-Svart og eldri hraungíginn er hér áður fjallað. Er nú komið að hæsta gígnum í allri gígaröðinni, þeim er á korti Sappers ber nafnið Roter Berg (Rauða Ijallið) og nær rétt um 100 m hæð. Sapper telur að hann sé að innan úr móbergi seinem Kern wohl ein alter Breccienberg ist). Ekki verður á það fallist hér. Hins vegar er ekki á því neinn vafí að gígurinn er eldri en Skaftáreldar. Hann er þó nú vart meira en hálfur. Misgengið nyrðra mun hafa legið um hann rétt sunnan undir hæsta hnúknum. Syðri helmingur hans hefur að mestu farið veg allrar veraldar í hraungosinu rnikla 1783, sem í hans stað hefur skilið eftir röð af ekki minna en níu hraungígum sem spúð hafa ógrynni af hrauni út yfír sléttlendið sunnan við. Allt þetta liggur næsta opið fyrir þegar staðið er á hátindi gígsins og litið yfír landið. Þennan gíg og aðra stóra 118

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.