Náttúrufræðingurinn - 1994, Page 46
9. mynd. Rásir eftir grjót- og öskuflóð utan á gíg frá fyrsta gosi, sem ber við loft, taldar
myndaðar af steypiflóði úr gossúlu. Nokkuð hefur fallið til baka í gíginn. - Rock and ash
flow originating in the pyroclastic crater at the skyline. The flow is believed to derivefrom
gravitational collapse of a vertical eruption column. Eruption I. Mynd/photo Jón Jóns-
son.
gígir og stórbrotið hraun fyrir að norð-
austan. Þar í kring er ekki alltaf auðvelt að
segja hvað er frá síðasta gosi og hvað frá
því fyrra. Einkum tveir stórir gígir hafa
verið mikilvirkir í síðasta gosi. Hvað
varðar útbreiðslu hrauna hér norðurfrá er
fjarri því að síðasta orðið hafí verið sagt.
Svæðið er hvað þetta varðar einfaldlega
ókannað og getur raunar reynst allt annað
en auðvelt, enda enginn við það reynt í
alvöru svo vitað sé. Við kortlagningu hefur
einfaldlega verið gengið út frá þvi að allur
hraunflákinn væri frá Skaftáreldum 1783.
Svo er með vissu ekki. Þarna er enn verk
að vinna. Sem næst 500 m norðaustan við
þessa gígi mætir manni mikið svæði stórra
og mjög margbreytilegra gíga sem taka
yfír um 1,5 km lengd og um 700 m breidd.
Þetta er í sannleika stórkostlegt svæði sem
í raun ekki á sinn líka í öllum Eldborga-
röðum. Hraungígaröðin frá 1783 rífur
þarna að endilöngu svartan gosmalargíg
frá 1. gosi, sem er 1,25 km langur, en inni í
honum hefur myndast hrauntjörn og þar
risið hrikalegir hraungígir sem hver tengist
öðrum í svo villtu umróti að vart verður
lýst. Ganga verður um með varkámi og
virðingu, en til hliðar, einkum norðvestan
megin, eru leifar hins foma gosmalargígs,
sem ekki hafa breyst að ráði í þeim hrika-
leik sem hér hefur farið fram sumarið
1783. Frá þessum eldvörpum hafa þá
hraunflóð mikil runnið út um skarð í norð-
austurenda þessa ösku- og gosmalargígs,
fram með honum og upp að honum að
norðan. Þar með er ljóst að hann er eldri,
enda sver hann sig í öllu í ætt við áður-
nefnda ösku- og gosmalargígi, og gróður-
vana er hann eins og þeir. Að norðan og
miðja vega á langveginn er gígur þessi
hæstur. Þar liggja, að utanverðu og niður
eftir honum, sérkennilegar rásir sem líkjast
farvegum (9. mynd). Þetta myndar talsvert
breitt belti niður norðurhlíð öskugígsins
Efnið er að verulegu leyti talsvert gróf
gosmöl, gjall og hraunflygsur ásamt ösku.
124