Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 21

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 21
fannst í Svíþjóð (lítið magn þess fannst í málmgrýtinu yttría, sjá 5. flokk). Flest heiti frumefnanna í þessum flokki skýra sig sennilega sjálf. Latnesk nöfn Frakk- lands og Rússlands koma fram í nöfnum frumefnanna gallíum og rúþeníum; Marie Curie uppgötvaði póloníum, en hún var fædd og uppalin í Póllandi. Nýrri nöfn í þessum flokki eru kaliforníum, berkelíum og ameríkíum, öll uppgötvuð við Kaliforníuháskólann í Berkeley í Bandaríkjunum af rannsóknar- hópi undir stjórn nóbelsverðlaunahafans Glenn Theodore Seaborg. 7. FLOKKUR NöFN TENGD LIT I þessum flokki eru níu frumefni: cesíum, indíum, iridíum, joð, klór, króm, rhódíum, rúbidíum og thallíum. Ur þessum flokki verður sagt frá fimm frumefnum sem fundust á árabilinu 1774- 1811, þ.e. frumefnunum klór, joð, króm, ródíum og iridíum. Við nafngiftina virðist yfirleitt hafa verið stuðst við lit frum- efnisins sjálfs eða lit af þekktu efnasam- bandi sem frumefnið myndar og í öllum tilvikum má tengja nöfnin grískum orðum. Byrjum á halógenunum tveimur: Nafnið klór er dregið af gríska orðinu khloros, sem þýðir gulgrænn og lýsir lit klórgufu; á sama hátt er joð dregið af gríska orðinu ioeides sem þýðir fjólublár og er litur joðgufu. Króm er leitt af khroma (gríska) sem þýðir einfaldlega litur og tengist því að mismunandi efnasambönd króms eru mismunandi á litinn. Þá er að nefna tvö frumefni sem bæði draga nafn af litum vatnslausna málmsaltanna: Rhódíum er dregið af gríska orðinu rhodon sem þýðir rós, og vatnslausnir ródíumsalta eru rauð- ar. Nafn iridíums er dregið af orðinu iris sem þýðir regnbogi á grísku ^ það er í ágætu samræmi við litskrúðugar vatns- lausnir iridíumefnasambanda. Þau fjögur frumefni sem eftir eru fundust öll á fjórum árum milli 1859 og 1863 í kjölfar uppgötvunar Bunsens og Kirchhoffs á litrófsgreiningu; nöfn þeirra eru leidd af latneskum heitum lita sem tengjast línum í útgeislunarrófum þeirra. ■ 8. FLOKKUR Nöfn tengd öðrum EIGINLEIKUM EN LIT í þessum flokki eru átta frumefni: antímón, bróm, fosfór, nitur/köfnunarefni, osmíum, súrefni/ildi, vetni og zink. Uppgötvun fosfórs er elsta uppgötvun frumefnis þar sem hægt er tengja fundinn ákveðnum manni. Það var þýski gull- gerðarmaðurinn Hennig Brandt sem upp- götvaði ■ fosfór fyrstur manna árið 1669, við leit sína að viskusteininum sem breytt gæti óæðri málmum í gull. Hann hefur hugsanlega talið sig hafa haft árangur sem erfiði þegar hann tók eftir ljósi frá eim- ingartækjum sínum, sem innihéldu upp- gufað þvagefni. Eitt af því sem hann gerði var nefnilega að láta þvagefni rotna í nokkra daga áður en það var soðið niður; afganginn, seigfljótandi massa, eimaði hann við hátt hitastig og þétti gufuna ofan í vatn. Þá fékkst fyrrgreint frumefni sem hvítt vaxkennt efni sem lýsti af þegar það komst í snertingu við loft. Þekkt var á þeim tíma að til voru steindir sem gátu geftð frá sér daufan ljósbjarma í myrkri og á miðöldum voru öll slík sýni nefnd fos- fór = ljós-beri. Nafnið fosfór var að lokum einungis notað um frumefni nr. 15. Á seinni hluta 18. aldar voru gerðar endurbætur á nafnakerfinu. Á því við- burðaríka ári 1789 gaf Antoine Laurent Lavoisier út frumefnatöflu með mörgum nýjum nöfnum og nýjum frumefnum. Hann áleit að nöfn allra nýrra frumefna ættu að veita upplýsingar um eiginleika þeirra. Nöfn súrefnis og köfnunarefnis eru ágæt dæmi um þessa hugmynd hans. Byrjum á súrefni: 1 kenningu Lavoisiers um sýrur, sem hann setti fram árið 1774, kemur m.a. fram að hann taldi að allar sýrur innihéldu súrefni. Þremur árum síðar, árið 1777, nefndi hann viðkomandi frumefni oxygen í samræmi við þessa 251

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.