Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 40
1. tafla. Niðurstöður eftiagreininga á gasi frá Lagarfljóti ásamt greiningum frá Urriða-
vatni og ísafirði.
Staður Dags. Greint af co2% n2% h2% ch4% o2% Ar% Rn dpm/1
Lagarfljót Vallholt 21/3 '84 Orkustofnun Raunv.stofn. 1,24 1,52 96,65 0,59" 124
Lagarfljót Vallholt 21/3 '84 Global Geoch. Corp. 1,22 2,50 94,8 1,28
Lagarfljót Vallholt 25/2 '85 — >> — 1,79 2,50 95,1 0,58 0,005
Lagarfljót Buðlungavellir 25/2 '85 — >> — 0,15 34,00 0,005 53,80 12,10
Lagarfljót Hreiðarsstaðir 25/2 '85 0,15 17,80 76,60 5,30
Urriðavatn hola 8 23/2 '85 0,25 95,40 0,24 0,62 1,46
Lagarfljót Vallholt 8/9 '80 Scripps Inst. of Oceanogr. 2,52) 97,5 175
Lagarfljót Hreiðarsstaðir 1963 Atvinnudeild Háskólans 1,6 24,03) 74,3
Isafjörður Suðurtanginn 1964 — »> — 2,9 9,03) 88,1
1) 02 + Ar 2) N2 + 02 + C02 + Ar 3)N2 + 02
Gasstreymi
Ekki var gerð bein tilraun til að meta
gasmagnið en til viðmiðunar má nota þann
tíma sem þurfti til að safna gasinu, en
yfirleitt tók um hálfa klukkustund að safna
einum lítra af gasi um trekt sem hvolft var
yfir afmarkað streymi.
Við Hreiðarsstaði var safnað í einu vök-
inni þar sem streymi var nægjanlegt til
sýnatöku. Ógerlegt er að meta heildar-
streymi á þessu svæði vegna þess hve
dreift það er og lítið víðast hvar. Af
viðræðum við Steinþór Eiríksson á Egils-
stöðum virðist ljóst að gasstreymið þar
hafði breyst töluvert á 20 ára tímabili.
Við Vallholt er gasstreymið á litlu
svæði. Jón Benjamínsson (pers. uppl.)
reyndi að meta heildargasstreymi þar í
ágúst 1987 og taldi hann það vera a.m.k.
15 1/klst. en sennilega töluvert meira.
Við Buðlungavelli voru vakirnar 5 tals-
ins og var safnað þar sem gasstreymið var
mest. Heildarstreymi gæti verið 8-10 1/
klst.
Við ósa Jökulsár er gasstreymi mun
meira en annars staðar, en ómögulegt var
að nálgast uppstreymið vegna þess hve
ísinn var þunnur og varð svæðið því aðeins
skoðað með sjónauka. Ógerlegt reyndist
að meta gasmagnið.
■ EFNA- OG
SAMSÆTUSAMSETNING
Sýnataka oc efnagreiningar
í mars 1984 var tekið sýni við Vallholt og
aftur í febrúar 1985 ásamt sýni frá
Buðlungavöllum og Hreiðarsstöðum auk
sýnis úr borholu nr. 8 við Urriðavatn til
samanburðar. í öllum tilvikum voru tekin
sýni til gasgreininga, en eitt vatnssýni var
tekið úr Lagarfljóti hvort árið og eitt frá
Urriðavatni. Þá var tekið sýni við Vallholt
í september 1989 til aldursgreiningar með
14C-aðferð.
Sýnin voru greind hjá Orkustofnun, Glo-
bal Geochemistry Corporation í Los Ange-
270