Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 36
alþingismaður hafði forgöngu um málið en
Jón Jónsson jarðfræðingur stýrði rannsókn-
um fyrir hönd Raforkumálaskrifstofunnar
(síðar Orkustofnunar). I maí 1963 var tekið
gassýni í Jökulsá í Fljótsdal við bæinn
Vallholt, um 2,5 km sunnan við Fljótið, og
reyndist það 93,7% metan.
Sumarið 1964 kom til landsins D.G.
Fallen Bailey, olíujarðfræðingur sem þá
starfaði hjá Sameinuðu þjóðunum, og
kannaði hann gasuppstreymið í samvinnu
við Jón Jónsson. Niðurstöður voru þær að
um væri að ræða mýragas sem myndast
þegar lífræn efni brotna niður í setlögum í
súrefnissnauðu umhverfi.
Sumarið 1966 voru boraðar tvær rann-
sóknarholur. Við Vallholt var borað til að
ganga úr skugga um hvort gasið kæmi úr
berggrunninum. A 1,5 m dýpi var komið í
fast berg og var borað niður á 49,5 m dýpi.
Ekki varð vart við gas í berginu en gas-
streymi hélst óbreytt í bakka Jökulsár 2-3
m frá holunni. Einnig var borað úti á
aurum Jökulsár til að kanna setfyllinguna
innan við Fljótið. Holan varð 132 m djúp,
en þar var komið í fast berg. Gróðurleifa
varð vart svo að segja alla leið og vottur af
gasi kom víða í holuna. í lokaskýrslu Jóns
Jónssonar (1967) um rannsóknirnar á
gasinu var niðurstaðan sú að um mýragas
væri að ræða, myndað við rotnun jurtaleifa
í setlögum á botni Lagarfljóts og undir
aurum Jökulsár.
Leú Kristjánsson
og Thomas Gold
Árið 1982 ritaði Helgi Hallgrímsson fróð-
lega grein í tímaritið Týli sem hann nefndi
Undrín í Lagarfljóti og verður vikið að
henni síðar. í framhaldi af henni skrifaði
Leó Kristjánsson grein í sama rit árið eftir
og nefndi hana Enn um Lagarfljótsundrin.
Leó hafði tekið sýni af gasi við Lagarfljót
fyrir Thomas Gold sem hann kynnir svo:
„Á árinu 1980 kemur síðan við sögu
Lagarfljótsundranna Thomas nokkur
Gold. Hann er Austurríkismaður, sem
fluttist til Bretlands á árunum fyrir stríð,
en er nú forstöðumaður geimrannsókna-
stofnunar Comell-háskóla í Bandaríkjun-
um. Thomas Gold er einn af merkari vís-
indamönnum, sem nú eru uppi, og hefur
komið þar víða við, þó starf hans sé
einkum á sviði stjarneðlisfræði. M.a. á
hann heiðurinn af því að hafa fyrstur út-
skýrt eðli svokallaðra tifstjaina. Á síðustu
árum hefur Gold velt mjög fyrir sér efna-
samsetningu alheimsins og jarðarinnar, og
þá bent á, að í ýmsum loftsteinum, sem
fundist hafa, er mikið af kolefnissam-
böndum. Hann telur, að við myndun jarð-
arinnar úr loftsteinum fyrir ármilljörðum,
geti vel hafa lokast djúpt í iðrum hennar
mikið magn kolefnis, sem nú geti verið að
leka út úr jörðinni í formi metans og
annarra kolvetna. Hefur Gold leitt ýmis
rök að þessari kenningu sinni, þó fjarri sé
því að allir séu honum sammála um hana.
Meðal annars telur hann, að gaslindir geti
að hluta átt uppruna í þessu „jarð“gasi, og
að slíkt gasútstreymi geti skýrt ýmis
fyrirbrigði sem fylgja jarðskjálftum.“
Leó tók sýni af gasi við Vallholt og eru
niðurstöður efnagreininga og samsætu-
mælinga í samræmi við eldri niðurstöður.
266