Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 54
stofuhald og ýmislegan annan rekstur og
erindi á vegum félagsins. Skrifstofa
félagsins að Hlemmi 3 (hjá Náttúrufræði-
stofnun Islands) var opin kl. 9-12 á
þriðjudögum og fimmtudögum flestallar
vikur ársins. Starfssamningar voru í
október endurnýjaðir við Guttorm fram-
kvæmdastjóra (til ársloka 1996), Sigmund
ritstjóra (til upphafs 67. árgangs) og Erling
útbreiðslustjóra. Stjórnarfundir voru 7 á
milli aðalfunda. Gefin voru út 7 félags-
bréf. Haldið var áfram þeim sið að stjórn
HIN sendi þeim aðilum jólakort sem
félagið hafði átt samskifti við á árinu eða
höfðu veitt því fyrirgreiðslu.
■ AÐALFUNDUR
Aðalfundur HÍN fyrir árið 1993 var hald-
inn í stofu 201 í Odda, Hugvísindahúsi
Háskólans, laugardaginn 26. febrúar 1994,
og hófst kl. 14. Fundurinn var fámennur að
vanda, en fundinn sóttu 13 manns. Fundar-
stjóri var valinn Stefán H. Sigfússon en
fundarritari Hilmar J. Malmquist. I upp-
hafi fundarins var Óskari Ingimarssyni,
fyrrum ritstjóra Náttúrufræðingsins, veitt
viðurkenning stjórnar HÍN fyrir sérstakt
framlag til kynningar á náttúrufræðum
hérlendis. Óskar hefur m.a. þýtt þúsundir
dýra- og plöntuheita á íslensku, en þau
hafa verið gefin út á bók, sem Óskar
tileinkaði HÍN. Auk þess hefur Óskar þýtt
og séð um mikinn fjölda náttúrufræðiþátta
í sjónvarpi. Hefur varla annað efni stuðlað
meira að því hin síðari ár að glæða og
viðhalda áhuga þjóðarinnar á náttúrufræð-
um hér á landi.
Nýr heiðursfélagi
Að tillögu stjórnar HÍN var Pétur M.
Jónasson, prófessor í vatnalíffræði í Kaup-
mannahöfn, kjörinn heiðursfélagi HIN.
Pétur hefur af frábærri atorku og yfirsýn
haft forgöngu að rannsóknum á Mývatni
og Þingvallavatni, lífríki þeirra og vatna-
sviðum, og útgáfu bóka um þessar heims-
frægu náttúruperlur. Með kjöri Péturs var
viðhaldið átta áratuga gamalli hefð, að
heiðursfélagar væru kjörnir félagsmenn
sem sérlega hafa þjónað félaginu, og
prófessorar við Hafnarháskóla sem mjög
hafa stuðlað að náttúrufræðirannsóknum á
Islandi.
Erindi ritstjóra
Þá flutti Sigmundur Einarsson, ritstjóri
Náttúrufræðingsins, stutt erindi um breyt-
ingar á efni og útliti Náttúrufræðingsins,
en undirtitill tímaritsins er „alþýðlegt
fræðslurit um náttúruf'ræði". Um árabil
hefur efni Náttúrufræðingsins orðið æ
sérfræðilegra og um leið verr aðgengilegt
fyrir almenning. Þessi þróun á rætur að
rekja til síaukinnar sérhæfingar meðal
náttúrufræðinga og að sama skapi þrengra
fræðilegs sjónarhorns margra þeirra. Fýsir
það sér m.a. í því að einungis um helming-
ur starfandi náttúrufræðinga á landinu
mun vera í HÍN. Skortur hefur verið á
vettvangi fyrir náttúrufræðinga til að birta
niðurstöður sínar hér á landi og hafa þeir
því leitað með þær í tímarit HÍN. Svo
gagnleg sem sú birting nýrra fræða er, þá
hefur margt af því efni verið svo sér-
fræðilegt að aðeins fáir tugir manna hafa
getað lesið þær greinar sér til gagns. Þetta
er ekki markmiðið með útgáfu Náttúru-
fræðingsins, heldur kynning á nýjungum
og öðrum fróðleik um náttúrufræði á
alþýðlegan hátt, án þess að rýra vísinda-
legt vægi greina. Því hafa stjórn HIN og
ritstjóri orðið einhuga um að gera tímaritið
aðgengilegra almenningi en verið hefur,
og gera nauðsynlegar breytingar á því af
því tilefni.
Skýrsla formanns
Formaður, Freysteinn Sigurðsson, flutli
skýrslu um starfsemi HÍN árið 1993.
Félögum hefur haldið áfram að fækka frá
árslokum 1987. Helstu orsakir eru taldar
vera tvennar. Annars vegar raunveruleg
eða ímynduð hagkreppa í þjóðfélaginu, en
vitað er til þess að fólk neyðist til að spara
við sig félagsgjöld. Hins vegar er of
sérfræðilegt efni Náttúrufræðingsins, en
mikill hluti félagsmanna hefur ekki önnur
not af félaginu en lestur tímarits þess.
284